Óhætt er að segja að hugmynd athafnamannsins Sigmar Vilhjálmssonar um að jafna laun fólks sem vinnur annars vegar dagvinnu og hins vegar kvöld- og helgarvinnu hafi mælst misjafnlega fyrir.
Sigmar varpaði hugmyndinni fram í pistli á vef Vísis þar sem hann sagði meðal annars:
„Hlutastarfsmenn í mörgum fyrirtækjum eru oft að fá hærri laun fyrir færri tíma vegna 33% álags á kvöldin og 45% álags um helgar. Það er óréttlátt gagnvart þeim launamönnum sem geta ekki unnið um kvöld og helgar.“
Sigmar bætti við að fjölskyldufólk væri í miklum meirihluta launamanna sem eiga erfiðara með að vinna kvöld- og helgarvinnu og þeim væri mismunað vegna þessa kerfis.
Sagði Sigmar að með því að horfa á vaktir, óháð tíma, virkum dögum eða helgum, væri hægt að leggja áherslu á dagvinnutaxta og um leið einfalda alla umræðu í kjarasamningum. „Hægt væri að nálgast málið með því að segja að fyrstu 8 tímar á vakt, óháð tíma eru á dagvinnutaxta, sem væri því kallaður einfaldlega: GRUNNTAXTI. Undanskilið væri helgidagar (rauðir dagar) og næturvinna.“
Sigmar deildi pistlinum á Facebook-síðu sinni þar sem hann spurði fylgjendur sína hvort þetta væri ekki frábær hugmynd. Hafi hann búist við jákvæðum viðbrögðum skjátlaðist honum.
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, benti til dæmis á þetta:
„Ehmm ég held að það myndi nú ganga nokkuð brösuglega að manna t.d löggæslu og sjúkrahús ef fólk fengi ekkert aukalega fyrir að vera í burtu frá fjölskyldu og missa af viðburðum og mannamótum sem oftast eru á kvöldin.“
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, spurði hvort þetta væri ekki í raun tillaga um að lækka laun fólks sem vinnur vaktavinnu og/eða kvöldvinnu, til dæmis starfsfólk veitingastaða. „Hver ætti að fagna því (aðrir en þeir sem eiga veitingahús)?“ spurði Gunnar Smári en Sigmar er sem kunnugt er í veitingageiranum.
Fleiri gagnrýndu skrif Sigmars og sáust til dæmis athugasemdir eins og: „Þú ert ekki í tengslum við raunveruleikann“ og „Hefðir þú Simmi verið til í dagvinnulaun þegar þú varst að vinna á laugardegi á Bylgjunni?“
Pistill Sigmars vakti einnig hörð viðbrögð á Twitter eins og sést hér að neðan:
Umbunin er sú að vera í fríi á kvöldin og um helgar ya fargin idiot pic.twitter.com/Vj8BFU2Bxg
— Oddur Gunnarsson Bauer (@oddurbauer) June 1, 2022
Er búinn að lesa þetta ca 100 sinnum en þetta er án efa allra sturlaðasta take sem ég hef lesið pic.twitter.com/kH6sXp2UKm
— Haukur Heiðar (@haukurh) June 1, 2022