Simmi Vill vann veðmál en fékk borgað á óvenjulegan hátt

Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, er stoltur stuðningsmaður fótboltaliðsins Liverpool. Í upphafi tímabilsins í Ensku úrvalsdeildinni gerði Simmi veðmál við vin sinn um hvort liðið myndi enda ofar Liverpool eða Manchester United.

Liverpool endaði í öðru sæti deildarinnar, en Manchester United endaði í því sjötta, sem þýddi að spá Simma var rétt.

Upphæðin sem Simmi og vinur hans veðjuðu uppá var fimmtíuþúsund krónur, en í gær var komið að því að borga fyrir vin Simma. Hann fékk þó ekki hefðbundna greiðslu, en á Twitter sýnir hann frá því.

„ManUtd maður borgaði í gær veðmál um hvort MUtd eða LFC yrði ofar i deildinni. Fékk greitt í gær 50.000kr…. í orðsins fyllstu merkingu 50.000x 1 kr.“ skrifar Simmi, sem birtir myndir af skrifborði sínu sem er uppfullt af einakrónum.

„Bara ef ManUtd hefði sett sama metnað í að efna gefin loforð í vetur, þá væru þeir meistarar! Snillingur Óli!“ bætir Simmi við.