Simmi Vill: „Twitter fólkið er rétt­­sýnt, um­­burðar­­lynt og for­­dóma­­laust“

Athafnamaðurinn Simmi vill kom sér í klandur á Twitter með tístum sínum um sóttvarnaaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Hann hefur gagnrýnt þær ítrekað en gekk aðeins of langt í gagnrýni sinni á lagalegar heimildir fyrir þeim. Því hefur hann beðist afsökunar á.

Simmi sagðist hafa fengið lögfræðiálit á aðgerðunum og lögfræðingurinn talið þær án lagastoðar.

Í upphaflega tístinu sagði hann að ef einhver væri sendur eða skipaður í sóttkví eða einangrun gæti hann kært niðurstöðuna og viðkomandi yrði sleppt út þar sem það væri ekki lagaleg heimild fyrir aðgerðunum.

„Þetta vissi ég ekki fyrr en í dag og ákvað að deila því með ykkur. Ekkert að þakka, þetta samtal kostaði bara 24K,“ skrifaði Sigmar, og vísar til þess að þessar nýju upplýsingar hafi hann fengið fyrir 24 þúsund krónur.

Í dag sendi hann svo frá sér annað tíst þar sem hann sagðist hafa fengið 24 þúsund krónurnar endurgreiddar frá lögmanni, „rétt í þessu.“ Sigmar gagnrýnir næst íslenska Twitter-heiminn með kaldhæðnislegri athugasemd, „Alltaf gaman að sjá hvað Twitter fólkið er réttsýnt, umburðarlynt og fordómalaust,“ skrifar hann. Tíst gærdagsins hafði fengið heldur óblíðar móttökur meðal fylgjenda og lesenda tístsins og margir höfðu hæðst að ummælum Sigmars.