Simmi Vill tók ekki vel í grín Gísla Marteins: Á launum frá ríkinu á hótelherbergi í Hollandi

Athafnamaðurinn og fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi Sigmar Vilhjálmsson skýtur fast á kollega sinn Gísla Martein Baldursson sem nú er staddur í Hollandi vegna Eurovision.

Gísli Marteinn lýsti fyrri undanúrslitakvöldinu í gærkvöldi í beinni útsendingu frá hótelherberginu sínu í Rotterdam. Ástæðan er sú að hann er í sóttkví vegna smits sem kom upp í íslenska fylgdarliðinu.

Gísli Marteinn lék á als oddi í lýsingu sinni í gærkvöldi, eins og honum er von og vísa, og skaut meðal annars á Sigmar í lýsingu sinni. Eins og frægt er orðið birti sá síðarnefndi myndband af sér grátandi vegna viðtals Sölva Tryggvasonar í eigin hlaðvarpsþætti á dögunum.

Gísli Marteinn gerði létt grín að þessu í lýsingu sinni þegar Rússar höfðu lokið við flutning á sínu framlagi. Sagði Gísli Marteinn eitthvað á þá leið að Simmi Vill hafi tekið myndband af sér grátandi og sent á stjórnmálamenn í Kreml. Eitthvað virðist þetta hafa farið öfugt ofan í Sigmar sem brást við á Twitter með eftirfarandi færslu:

„Magnað. Gísli Marteinn er á launum Ríkisins og líklega á dagpeningum líka, inná hótelherbergi í Hollandi. Hefði mátt spara pening með hafa hann á Íslensku hóteli og styrkt ferðaþjónustuna í leiðinni. Hann er samt svo mikið krútt. #12stig

Einn bendir Sigmari á að Gísli Marteinn hafi verið í sóttkví og þess vegna hafi hann þurft að lýsa undanúrslitakvöldinu frá hótelherbergi sínu. „Já èg skil. Þá verður hann líklega í meira stuði og skemmtilegri. Erfitt að performera svona einn inná herbergi,“ svaraði Simmi að bragði.

Svo spyr einn hvort Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, hafi skrifað þetta tíst fyrir Sigmar. Því svaraði Sigmar einfaldlega svona: „Hehe.“