Sigmar Vilhjálmsson stjórnarmaður Atvinnufjelagsins og Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins tókust á í Sprengisandi í morgun.
Aðalumræðuefni þáttarins var uppástunga Simma um að sérstakt álag á kvöldvinnu ætti ekki að vera hérlendis en í dag er 33 prósent álag á kvöldvinnu og 45 prósent á helgarvinnu.
„Hvatinn að þessu er að þegar við horfum í kringum okkur, þá er jafnari munur á milli þeirra sem vinna dagvinnu á móti kvöld- og helgarvinnu. Við erum í sérflokki þegar kemur að þessu,“ sagði Sigmar.
„Ef við horfum til Svíþjóðar, þá byrjar álag á dagtaxta að tikka eftir átta á kvöldin, eftir það leggst á álag sem er 18 prósent. Þessi 18 prósent gilda líka um helgar,“ segir Simmi.
Sigmar segir lítil- og meðalstór fyrirtæki hafa hag af því að kaupmáttur launa sé mikill., því sé hann ekki að leggja til að lækka laun í landinu. „Það væri versta hugmyndin að lækka grunnlaun,“ sagði Simmi.
Þáttastjórnandi Sprengisands velti því þá fyrir sér hvort það væri hvati til þess að fólk vinni kvöld og helgarvinnu ef álagið lækkar.
Simmi svaraði því svoleiðis að það væri erfitt að fá fólk til vinnu. Ef það er samkeppni, þá ferð þú í yfirboð. Lítil og meðalstór fyrirtæki eru ekki að greiða lágmarkslaun, sem allur fókus fer í að ræða um. Það eru sveitarfélögin sem greiða lágmarkslaun,“ segir Simmi.
„Öll umræðan snýst um hóp og atvinnutaxta sem er ekki í atvinnulífinu,“ segir Simmi um lágmarkslaun.