Veitingamaður Sigmar Vilhjálmsson og Hrefna Björk Sverrisdóttir, formaður Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, ræddu sóttvarnaraðgerðir í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Sigmar sagðist skilja afstöðu Þórólfs þar sem hann væri bara að hugsa um sóttvarnir og gefur út mat útfrá því. Hins vegar væri fullt annað í gangi í samfélaginu sem þarf að huga að líka þegar kemur að því að taka ákvarðanir um sóttvarnaraðgerðir.
„Vandinn liggur klárlega á Landspítalanum og getu hans til að takast á við þau veikindi sem bera þar að garði. Klárlega er heilbrigðiskerfið okkar ekki betra og sterkara en þetta. Þetta er ekki eitthvað sem gerist á einu eða tveimur árum þetta er uppsafnaður vandi,“ sagði Sigmar og sagði ábyrgðina liggja hjá fjármálaráðuneytinu til jafns við heilbrigðisráðuneytið.
„Að því sögðu þá hef ég oft kallað eftir því að við horfum á heildarmyndina og afleiðingar kórónufaraldursins. Eitt er spitalinn en hitt er þessi uppsafnaði yfirdráttur sem við höfum ekki tekið á. Félagslegur kvíði, þunglyndi, sjálfsvíg og eins og við flokkum sjálfsvíg á Íslandi þá erum við ekki að fá réttar tölur upp úr kössunum það er fullt af öðrum alvarlegum hlutum að gerast í samfélaginu sem mér finnst að sóttvarnalæknir ætti að skoða líka,“ bætti Sigmar við.
„Stjórnmálin hafa ekki sést í þessu máli og hent ábyrgðinni á þríeykið með því að fría sig ábyrgð og segja „Við fylgjum þeim,““ sagði Sigmar. „Þrýstingur samfélagsins á liggja á stjórnvöldum. Þessir aðilar bera ábyrgðina.“
Sigmari var bent á það að sóttvarnaryfirvöld hafi sagt að það er ekkert grín að veikjast þótt maður sér bólusettur.
„Við áttum okkur á því en við verðum samt að horfa á tölfræðina,“ sagði Sigmar og bætti við að 0,01 prósent þeirra sem smitast deyja. „Það að Gulli frændi kemst ekki lengur upp Esjuna án þess að vera móður eftir hann fékk covid er rosalega leiðinlegt og ég ætla ekki að gera lítið úr því. En það eru bara fullt af öðrum hlutum sem eru að gerast í samfélaginu sem eru alvarlegri en það að þú missir þolið í sex mánuði,“ sagði Sigmar.
Hann sagðist jafnframt ekki skilja opnunartíma skemmtistaða en allir skemmtistaðir loka nú á sama tíma og myndast stórar hópamyndanir á götum úti eftir lokun
„Hver er munurinn á því að loka tíu eða loka tólf. Því þú ert með sama fólkið inn í sama hólfinu,“ sagði Sigmar. „Smitast eitthvað meira milli ellefu og tólf á kvöldin en tíu og ellefu. Svo koma menn með svona teóríur um að menn knúsist meira undir áhrifum þetta er bara eitthvað gisk út í bláinn,“ sagði Sigmar.