Simmi Vill og Björn Ingi telja Bjarna vita meira en hann gefi upp: „Mjög snjall leikur“

Mörg þung orð hafa verið látin falla um færslu Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, um yfirheyrslur blaðamanna Stundarinnar, Kjarnans og RÚV í tengslum við fréttir af skæruliðasveit Samherja. Gagnrýndi Bjarni harðlega viðbrögðin við tíðindunum og sakaði fréttastofu RÚV um hlutdrægni í umfjöllun sinni.

Andrés Jónsson almannatengill sagði færsluna mikinn afleik: „Hans helsti styrkleiki hefur einmitt verið að stilla sig um að gefa okkur of mikla innsýn í sín þrengri sjónarhorn á samfélagið.“

Því er Sigmar Vilhjálmsson, Simmi Vill, ekki sammála:

„Afleikur? Hann hefði aldrei gert þetta nema að hann vissi meira en eg og þu. Mjög snjall leikur. Virkar Bold, fær alla a sig og siðan “sigrar” hann.“

Fleiri en hann hafa tekið í sama streng og Simmi, þar á meðal Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, sem skrifar á vef sinn:

„Óvanalegt er að Bjarni blandi sér með slíkum hætti í viðkvæm mál sem fátt er enn vitað um og þess vegna hafa strax vaknað spurningar um það hvort Bjarni viti í reynd meira um þessi mál en við hin og hafi þess vegna ákveðið að senda frá sér skýr skilaboð.“