Sigmar Vilhjálmsson, athafna- og veitingamaður, er allt annað en sáttur með ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 0,5 prósent.
Um er að ræða elleftu stýrivaxtahækkunina í röð. Vextirnir hafa hækkað mjög skarpt frá því í maí 2021, þegar þeir voru 0,75 prósent.
Verðbólga á Íslandi mælist nú 9,9% og eru verðbólgumarkmið bankans ekki að fara nást í vor.
Sigmar, betur þekktur sem Simmi Vill, segir að það sé afskaplega skrýtið að ríkisstjórnin sé ekki að bæta sér í þessum málum.
„0,5% hækkun vaxta þýðir 26 milljarða króna í auknar skuldir á fyrirtæki landsins, sem skulda um 5400 milljarða. Hvernig á það að lækka verðbólgu að auka skuldir og hækka húsaleigu? Seðlabankinn hefur þetta "vopn". Ríkisstjórnin hefur 1.000 vopn. Er Seðlabankinn nýja þríeykið?“ skrifar Sigmar.
Hlynur Bárðarson, vísindamaður hjá Hafrannsóknarstofnun Ísland, segir að það hafi verið nokkuð augljóst á fundinum áðan að Seðlabankinn sé hundfúll út í ríkisstjórnina. „Hálfpartinn eins og þeir væru að nota stýrivaxtahækkun til að sparka í Bjarna, Katrínu og Sigurð Inga - verst að það bitna á fyrirtækjum og almenningi en ekki þeim,“ skrifar Hlynur.
0,5% hækkun vaxta þýðir 26 milljarða króna í auknar skuldir á fyrirtæki landsins, sem skulda um 5400 milljarða. Hvernig á það að lækka verðbólgu að auka skuldir og hækka húsaleigu? Seðlabankinn hefur þetta "vopn". Ríkisstjórnin hefur 1.000 vopn. Er Seðlabankinn nýja þríekið?
— Simmi Vil (@simmivil) February 8, 2023