Simmi Vill lætur Gísla Martein finna fyrir því: Er ekki örugglega verið að sekta alla núna sem eru á nagladekkjum?

Sigmar Vilhjálmsson, veitingamaður og athafnamaður, lét Gísla Martein Baldursson, sjónvarpsmann og fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, finna fyrir því á Twitter í morgun.

Íbúar á suðvesturhorninu vöknuðu upp við vondan draum í morgun þegar allt var nánast á kafi í snjó. Sumardagurinn fyrsti gekk í garð fyrir viku og þann 15. apríl síðastliðinn var bannað að aka um á nagladekkjum.

Gísli Marteinn hefur verið duglegur að gagnrýna lögregluna fyrir að sekta ekki strax þá ökumenn sem aka um á nagladekkjum eftir 15. apríl. Sigmar sló á létta strengi á Twitter í morgun og taggaði Gísla Martein.

Eru þið @logreglan ekki örugglega að sekta alla sem eru a nagladekkjum? Kannski réttast að svipta þá á staðnum ! Sammála @gislimarteinn?