Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, segir að hann hafi á tilfinningunni að hér á landi búum við í „tvöföldu samfélagi,“ einu fyrir opinbera starfsmenn og öðru fyrir þá sem vinna í einkageiranum.
Hann segir óskir yfirvalda um þolinmæði ekki taka tillit til starfsfólks í einkageiranum, sem og úrræði vegna Covid-faraldursins.
„Gera ráð fyrir því að allir geti bara unnið heima og tekið sitt sumarfrí,“ segir Simmi á Twitter.
Hef á tilfinningunni að við búum í tvöföldu samfélagi. Opinberir starfsmenn vs. starfsmenn einkageirans. Orðræða ráðamanna í úrræðum og óskir um þolinmæði tekur ekkert tillit til starfsmanna einkageirans. Gera ráð fyrir því að allir geti bara unnið heima og tekið sitt sumarfrí.
— Simmi Vil (@simmivil) August 5, 2021