Simmi Vill er ekki skráður faðir

Sigmar Vilhjálmsson, veitingamaður og fyrrverandi sjónvarpsmaður, er ekki skráður faðir samkvæmt vefkerfi sveitarfélaga, Völu. Hann greinir frá þessu á Twitter.

„Var að reyna að skrá syni mína í mötuneyti skólans,“ segir Sigmar sem er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum.

„Ég er víst ekki faðir samkvæmt kerfinu. Hvenær á í alvöru að laga þetta kerfi sem við einstæðir feður búum við?“