Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður, betur þekktur sem Simmi Vill, var ómyrkur í máli í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. Sigmar hefur gagnrýnt stefnu stjórnvalda í Covid-faraldrinum og hefur hann einkum viðrað áhyggjur sínar af félagslega þættinum.
Sigmar fór um víðan völl í viðtalinu og sagðist meðal annars hafa áhyggjur af því að læknar, Kári Stefánsson og fleiri, séu þeir einu sem eru með röddina í þessari umræðu um Covid. Sigmar dró ekki fjöður yfir það að læknar og heilbrigðisstarfsfólk hefði staðið sig vel en hann sagðist þó hafa áhyggjur af félagslega þættinum í þeim samkomutakmörkunum sem eru gildandi og gætu gilt næstu tvö árin ef marka má orð sóttvarnalæknis.
„Þú ert með þunglyndi og allskonar hluti sem við höfum ekkert mælt. Við ættum að geta það því við sem þjóð, við þurfum að hafa debet og kredit í því uppgjöri. Við erum eingöngu stýrð í dag af þríeykinu sem er með læknisfræðilegt sjónarmið að leiðarljósi, eðlilega,“ sagði hann meðal annars og kallaði eftir heildarúttekt á þessum málaflokki.
Sigmar gagnrýndi kerfið einnig fyrir leti.
„Nú rek ég stað sem er 2000 fermetrar. Það að ég fái úthlutað jafn mörgum einstaklingum í fjöldatakmarkönum og staður sem er 300 fermetrar er bara leti kerfisins að nenna ekki að koma með betri reglur. Ef þú ert með eins og tveggja metra reglu þá áttu að fara eftir fermetrum,“ sagði Sigmar.
Þegar hann var spurður hvort ríkisstjórnin væri of gamaldags, sagði Sigmar:
„Þau eru bara á kosningaári á leiðinni í kosningar og þau eru þar af leiðandi meira að hugsa um rassgatið á sjálfum sér heldur en þjóðina, ef ég má tala íslensku. Menn þora ekki að stíga inn og taka ákvarðanir sem eru til heilla þjóðinni á hættu við að missa vinsældir. Þetta er bara grafalvarlegt mál,“ sagði hann og bætti við að með því væri hann ekki að segja að stjórnarandstaðan væri betri.
Hvatti Sigmar yfirvöld til að bretta upp ermarnar og hætta að kerfið kerfið svona „latt“ eins og hann orðaði það.
„Þetta er bara leti að fara ekki betur ofan í málið og útfæra þessi úrræði ekki betur, hvort sem það er í efnahagsmálum, félagslegum málum eða heilbrigðismálum.“