Simmi skilur ekkert í nýjum tak­mörkunum og segist „reiðubúinn til að falla á kné og grátbiðja um endurmat“

Ný reglu­gerð um sam­komu­tak­markanir tók gildi hér á landi á mið­nætti en sam­kvæmt nýjum reglum mega nú allt að 20 manns koma saman auk þess sem frekari til­slakanir voru gerðar sem snúa að ýmis konar þjónustu.

Það vekur þó at­hygli að engar breytingar voru gerðar á starf­semi veitinga­staða, fyrir utan að krár megi opna á nýjan leik. Veitinga­menn eru ekki par sáttir við þessa á­kvörðun og hafa kallað eftir frekari undan­þágum.

At­hafna­maðurinn Sig­mar Vil­hjálms­son, eða Simmi Vill eins og hann er gjarnan þekktur, er meðal þeirra sem hefur kallað eftir slíku en í grein sem hann birtir á Vísi í dag grát­biður hann heil­brigðis­ráð­herra og sótt­varna­lækni um endur­mat. Mikill munur sé á 20 manna og 50 manna sam­komu­tak­mörkunum.

„Í dag, 15. apríl tók gildi kær­komin til­slökun á sótt­vörnum í ljósi árangursins sem náðst hefur. En það er eins og veitinga­staðir hafi gleymst,“ skrifar Simmi í pistli sínum en hann segir veitinga­staði hafa verið skildir eftir eina ferðina enn. „Veitinga­staðir eru svo sannar­lega ekki hættu­legir.“

Simmi vísar til þess að sótt­varnir séu í há­vegum hafðar hjá flestum veitinga­stöðum en engu að síður þurfi þau að sætta sig við 20 manna há­marks­fjölda. „Það að hækka ekki þessa tak­mörkun núna aftur er mér fyrir­munað að skilja. Ekki nema að það hafi bara gleymst. Ég vona að það sé raunin og að hægt sé að leið­rétta það.“

„Undir­ritaður hefur barist við að halda rekstri veitinga­staða gangandi nú í 13 mánuði, án þess að segja upp starfs­fólki. Kostnaðurinn hefur fallið á fyrir­tækið og eig­endur. En við höfum á­vallt litið svo á að það sé okkar skylda að standa vörð um starfs­menn okkar og leggja okkar af mörkum að gera gott úr því sem við höfum úr að spila,“ segir Simmi.

„Undir­ritaður er reiðu­búinn til að falla á kné og grát­biðja um endur­mat á þessum fjölda­tak­mörkunum. Næstu þrjár vikur eru langur tími eftir þá þrettán mánuði sem við höfum búið við erfiðustu mögu­legu rekstrar­að­stæður sem hugsast getur,“ segir Simmi enn fremur.