Ný hugmynd Sigmars Vilhjálmssonar, sem er betur þekkur sem Simmi Vill, hefur farið fyrir brjóstið á mörgum, en hann lagði til að kvöld- og helgarálag yrði lagt niður og fólk myndi fá jafnmikið borgað fyrir þessa tíma.
Margir fjölmiðlar fjölluðu um málið, þar á meðal DV, en þar var fyrirsögnin þessi: „Simma finnst óréttlátt að fólk sem vinnur um kvöld og helgar fái meira borgað“. Simmi var þó ekki parsáttur með umfjöllun miðilsins og mætti í commentakerfið fræga.
„Áhugavert að DV skuli orða þetta svona í stað þess að segja: "Simma finnst óréttlátt að dagvinnulaun skulu ekki vera hærri". Svona geta fyrirsagnir búið til gremju og óupplýsta umræðu í athugasemdum.“ sagði Simmi sem benti á að hann væri að taka þátt í commentakerfi DV í fyrsta skipti.
Hann vill meina að hugmyndin snúist ekki um að lækka laun þeirra sem vinna kvöld- og helgarvinnu, heldur að hækka laun þeirra sem vinna dagvinnu.
„Þetta eiga að vera sömu laun fyrir sömu vinnu. Síðan á auðvitað að greiða fyrir næturvinnu (eftir kl. 00.00) og vinnu á rauðum dögum. Þar sem þetta er nú í fyrsta sinn sem ég gerist virkur í athugasemdum, þá er kannski ágætt að skjóta því inn að þegar maður setur inn svona færslu þá er ágætt að hafa kynnt sér málið áður en maður byrjar að drulla yfir fólk. Góðar stundir,“
Ansi margir létu Simma heyra það í commentakerfinu, en hann mætti þá sjálfur og svaraði fullum hálsi. Til að mynda sagði einn reiður netverji: „Simmi er þvílíkur hlandhaus og hálfviti að manni verður orða vant stundum. Svo sjálfsmiðaður að það kemst ekkert að nema það sem kemur honum vel! Græðgin að drepa þennan ræfil!!!“
Simmi svaraði: „Þú ættir að gefa þér 5 mínútur í viðbót til að lesa um hvað málið snýst. Leiðinlegt að lesa svona comment frá þér, ég held að þú þekkir mig nákvæmlega ekki neitt.“
Þá gangrýndi annar Simma og sagði að hann hefði eflaust ekki reynslu af því að vinna í fastri kvöldvinnu, og hún væri ekki þess virði fengi maður ekki að hitta börnin sín. Sigmar sagði þetta ekki rétt og sagðist hafa unnið allt sitt líf:
„Ég hef unnið fyrir mér með skúringum í 11-11 verslunum á nóttunni, ég hef unnið alla mína æfi, enda ekki stúdent og sonur skólastjóra og mömmu sem vann við skúringar og sjúkraliði. Aðgát skal höfð í nærveru sálar, ekki dæma fólk sem þú þekkir ekki. Sérstaklega ekki svona opinberlega.“