Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, eða Simmi Vill eins og hann er þekktur, er kominn með kærustu. Það kom fram í nýjasta þætti hlaðvarpsins 70 mínútur sem hann stýrir sjálfur ásamt Huga Halldórssyni.
Félagarnir byrjuðu þáttinn á því að ræða hvað væri fram undan og spurði Hugi svo hvort að stóra fréttin væri samt sem áður ekki að Simmi væri genginn út.
„Nei, þetta ætlum við ekki að ræða,“ segir Simmi en tilefni tilkynningarinnar var umfjöllun þeirra um tíu ára afmæli Tinder. Ekki kemur fram í hlaðvarpinu hver sú heppna er þrátt fyrir tilraunir Huga til að fá Simma til að ræða málið.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan.