Sigmar Vilhjálmsson, veitinga- og athafnamaður, svaraði virkum í athugasemdum fullum hálsi þegar hann fékk það óþvegið í kommentakerfi DV í gærkvöldi.
DV fjallaði um Twitter-færslu Sigmars þar sem hann gagnrýndi afturvirkni nýrrar miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram í gær.
„Hvernig á veitingastaður að fara að því að borga afturvirk laun? Getur hann sent viðskiptavinum sínum viðbótar reikning fyrir jólahlaðborðið í Des. Afturvirk verðhækkun? Hvaða skrípaleikur er þetta!“
Óhætt er að segja að Sigmar hafi fengið það óþvegið í athugasemdakerfi DV vegna þessa og féllu allskonar ljót ummæli um veitingamanninn.
Sigmar fékk á endanum nóg og skrifaði langa færslu í athugasemdakerfið þar sem hann svaraði fullum hálsi.
„Ég skal segja ykkur það. Hér er fólk að koma fram undir fullu nafni og fær útrás með ansi undarlegum hætti. Ég trúi því staðfastlega að þú eigir að koma fram við náungan eins og þú vilt að hann komi fram við þig. Mun því gera það og gera tilraun til að upplýsa ykkur,“ sagði Simmi sem bar hönd fyrir höfuð sér.
„Í fyrsta lagi þá hef ég ekki greitt út arð úr neinu veitingahúsafélagi síðan 2011. Í öðru lagi þá fengi ekkert veitingafélag starfsfólk til starfa á lágmarkslaunum og eg þekki ekki veitingamenn sem greiða slík laun. Í þriðja lagi þá hafa vaxtahækkanir sem ekki lágu fyrir gríðarleg áhrif á leiguverð veitingastaða. Í fjórða lagi þá hafa mín fyrirtæki ekki fengið eina einustu krónu í styrki frá ríkinu vegna Covid.“
Hann segir að í fimmta lagi hafi hann ekki sagt upp einum einasta starfsmanni í Covid heldur hafi hann reynt að finna lausnir til að halda þeim öllum í vinnu.
„Í sjötta lagi þá kostaði það eigendur mikla fjármuni að halda öllu gangandi enda engar tilslakanir né styrkir þegnir. Í sjöunda lagi þá er engin undir aldri að afgreiða áfenga drykki á mínum stað. Í áttunda lagi þá hefur okkar staður ekki hækkað verð á þessu ári þrátt fyrir hækkað vöruverð og hækkaða áfengisskatta. Í níunda lagi þá hef ég aldrei á minni veitingareksturs ævi minnkað hamborgara til að spara. Í tíunda lagi þá er alveg ljóst að ekkert ykkar sem dæmið mig hér persónulega þekkið mig persónulega,“ sagði Sigmar sem endaði svar sitt svona:
„Í raun alveg magnað að þið skuluð leyfa ykkur svona hegðun, orðbragð og sleggjudóma. Maður á að vera dæmdur af verkum sínum en ekki tilfinningum. Því ætla ég ekki að dæma ykkur. Get þó sagt að það að þurfa að lesa svona hluti er særandi þó ég hafi áratuga reynslu af svona framkomu ókunnugra. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Guð gefi ykkur góða nótt.“