Sigmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri og eigandi Minigarðsins, ætlaði sér að gefa eina milljón krónur í reiðufé í fyrsta vinning í Risabingó sem fer fram á morgun, fimmtudag 31. mars.
Um bingó gilda lög um happdrætti nr. 38/2005. sbr. einnig reglugerð um leyfisskyld happdrætti nr. 530/2006, en bingó er ein tegund happdrætta. Þá er óheimilt að reka happdrætti þar sem spilað erum peninga eða peningaígildi nema samkvæmt sérstakri lagaheimild.
„Leyfi til að reka happdrætti má einungis veita félagi, samtökum eða stofnun sem er skráð á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilgangurinn verður að vera að afla fjár til almannaheilla svo sem til þjóðfélags-, líknar-, menningar-, íþrótta- eða góðgerðarmála, svo og til alþjóðlegs mannúðarstarfs,“ segir í tilkynningu frá Minigarðinum.
„Eftir að hafa fengið ábendingar frá Dómsmálaráðuneytinu um þessi lög þá höfum við gert breytingar á fyrirkomulagi Risa Bingósins og munum því ekki vera með Eina milljón króna í reiðufé í aðalvinning.“
Vinningar Risabingósins eru engu að síður stór glæsilegir, 100.000 gjafabréf frá Icelandair, 100.000 króna inneign á Samkaups appinu, 100.000 kr. gasgrill frá Húsasmiðjunni, 320.000 kr. Serta hjónarúm frá Betra Baki, útivistarfatnaður frá Cintamani, ofl. ofl. Samtals verður verðmæti vinninga rúmlega 900.000kr.
„Þar sem sala Bingóspjalda fór fram í forsölu á netinu, þá höfum við boðið viðskiptavinum okkar tvo valkosti í ljósi breyttra forsenda:
- Að fá endurgreitt að fullu.
- Að mæta með bros á vör í Risabingóið og fá tvö bingóspjöld fyrir hvert keypt spjald.“
Í tilkynningu Minigarðsins segir Sigmar að honum þyki þessi yfirsjón leiðinleg og biðst hann afsökunar á þessum óþægindum.