Sími Láru fylltist af gylliboðum eftir að hún sá umrædd skilaboð

Lára G. Sigurðardóttir læknir segir að sími hennar hafi fyllst af gylliboðum um tónaðri líkama eftir að hún heyrði heilsufrömuð spyrja fylgjendur sína á samfélagsmiðli hvort þeir væru tilbúnir í sumarfötin.

Lára er bakþankahöfundur Fréttablaðsins og skrifar oftar en ekki um heilsutengd málefni sem eiga erindi við okkur flest.

„Síðan komu ráð­leggingar um að drekka meira vatn og borða kol­vetnasnauðara fæði. Upp frá þessu fylltist síminn minn af gylli­boðum um tónaðri líkama. Mittis­mjórri. Álit­legri. Al­grím Google telur nú að mig dreymi um betra boddí,“ segir Lára í bakþönkum blaðsins í dag.

Hún segir að megrun sé merkilegt fyrirbæri sem sögð er eiga rætur að rekja til Forn-Grikkja og er enn feykivinsæl eins og dæmin sanna.

„Reiknað hefur verið út að um tveir af þremur yfir kjör­þyngd séu að jafnaði í megrun og fjórðungur fólks í eða undir kjör­þyngd. Þá hafa megrunar­kúrar verið tals­vert rann­sakaðir,“ segir Lára og vísar til dæmis í Christopher Gardner, prófessor við Stanford-há­skóla.

Hún segir að hann hafi talið sig geta spáð fyrir út frá erfða­þáttum og insúlíngildum hvort fitu­skert eða lág­kol­vetna­fæði henti betur.

„Þvert á spárnar hans sýndi rann­sóknin að það sem skiptir mestu máli eru matar­venjur. Fólkið sem missti flest kíló átti það sam­eigin­legt að breyta sam­bandi sínu við mat. Það verslaði ferskan mat, hafði reglu á matar­tíma, eldaði fyrir sig sjálft, setti mikið græn­meti á diskinn og hafði at­hyglina á matnum þegar það snæddi,“ segir Lára sem spyr svo nokkurra lykilspurninga að lokum.

„En af hverju erum við svona oft í megrun? Er mark­mið lífsins að líta sem best út í bikiní? Mun það raun­veru­lega breyta ein­hverju fyrir líðan okkar að losna við nokkur kíló? Nú get ég ekki full­yrt fyrir þig en rann­sóknir sýna að það sem gerir fólk á­lit­legast er góða skapið. Al­mennt séð þykir hamingju­samt fólk mest að­laðandi.“

Lára segir að „bergmálið um betra bikiníboddí“ haldi líklega áfram að elta hana, en þess í stað ætli hún að taka sitt boddí í sátt og ekki einblína á kíló. „Líður okkur ekki ein­mitt best þegar við borðum hollt, hreyfum okkur, sofum vel og höfum gaman?“