Sigurþóra allt annað en sátt við fréttaflutning af eineltismálinu í Hafnarfirði

„Horfði í forundran á fréttaflutning Rúv og fleiri af eineltismáli og afleiðingum þess fyrir þolanda í gær,“ segir Sigurþóra Bergsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Bergsins, í færslu á Facebook-síðu sinni.

Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri og er markmið þess að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Þangað leita til dæmis ungmenni sem upplifa almenna vanlíðan, þunglyndi eða kvíða og hafa lent í allskonar áföllum.

Eineltismál í Hafnarfirði hefur vakið gríðarlega athygli en tólf ára stúlka í Hraunvallaskóla reyndi að svipta sig lífi á dögunum eftir hrottalegt einelti.

Sigurþóra veltir fyrir sér hvernig fréttastofu RÚV datt í hug að fara fram með þeim hætti sem hún gerði í gærkvöldi.

„Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar daginn eftir þeirra allra versta dag. Þar sem allur heimur þeirra er í uppnámi. Umfjöllunin brýtur allar reglur um hvernig fjalla skuli um sjálfsvíg. Ég myndi halda að siðanefnd Blaðamannafélagsinss ætti að fjalla um þennan fréttaflutning. Ábyrgð ritstjórna er mikil,“ segir Sigurþóra.

Hún kveðst vona að samfélagið í Hafnarfirði taki höndum saman í að vinna með þetta mál. Vonar hún að unga stúlkan, Ísabella Von, og móðir hennar fái allan þann stuðning sem þær þurfa.

„Hvet alla foreldra að ræða við börnin sín um afleiðingar ofbeldis og eineltis. Það er mikilvægt að fjalla um ofbeldi meðal barna og fjalla um hvernig við sem samfélag ætlum að takast á við það. Hvet öll þau sem slík umfjöllun kveikir erfiðar tilfinningar til að leita sér aðstoðar, ræða við foreldra eða aðra sem þið treystið. Píetasíminn, hjálparsími Rauða krossins, við í Berginu fyrir 12-25 ára. Ekki sitja ein,“ segir Sigurþóra sem hvetur fjölmiðlamenn til að vanda sig.

Margir virðast taka undir þetta hjá Sigurþóru og segir leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir til dæmis:

„Svo sammála, algerlega óskiljanlegt og ónærgætið í alla staði. Fá hana til að lesa upp úr símanum, hryllingur.“


Félagasamtök á borð við Pieta og Geðhjálp geta veitt mikilvægan stuðning og er hjálparsími Pieta, s. 552-2218 alltaf opinn, sömuleiðis Hjálparsími Rauða krossins, 1717 og netspjallið 1717.is. Sorgarmiðstöð, s. 551 4141 sinnir stuðningi við aðstandendur og Heilsugæslan getur jafnframt veitt aðstoð.