Sigursteinn Másson, kvikmyndagerðarmaður og fjölmiðlamaður, segir að hann hafi ekki verið krafinn um vottorð um COVID-hraðpróf þegar hann kom til landsins á laugardag.
Raunar hafi aðrir farþegar í fluginu ekki heldur verið krafnir um vottorðið á þeirri forsendu að búið væri að kanna vottorðið ytra.
Sigursteinn gerir frétt Vísis í gær að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.
Í fréttinni kom fram að Ómar Úlfur Eyþórsson, útvarpsmaður á X-inu, hefði ekki þurft að framvísa neikvæðu COVID-vottorði þegar hann kom frá Noregi á dögunum. Höfðu Ómar og kona hans greitt 34 þúsund krónur fyrir hraðpróf á Gardermoen-flugvellinum í Osló en ekki hafi komið til þess að hann þyrfti að sýna vottorðið.
Starfsmaður á flugvellinum í Noregi hafi komið af fjöllum þegar hann bauðst til að sýna honum vottorðið og það hafi komið honum verulega á óvart þegar hann þurfti ekki heldur að sýna það á Keflavíkurflugvelli.
Sigursteinn deilir svipaðri reynslu og segir að í hans tilfelli hafi ekki verið búið að kanna vottorðið ytra.
„Ég hef heyrt sömu sögu frá öðrum sem komið hafa til landsins að undanförnu með mismunandi flugfélögum. Gera verður ráð fyrir því að þúsundir farþega, eins og ég, hafi komið til landsins, án þess að vottorð hafi verið skoðuð, hvorki við brottför ytra né við komuna til Íslands. Og svo er talað um nauðsyn nýrrar skimunar á landamærum því veiran flæði inn í landið! Hvernig væri að byrja á því að framfylgja þeim reglum og ráðstöfunum sem nú þegar eru í gildi áður en mat er lagt á gagnsemi þeirra og nýjar ákveðnar?“