Sigursteinn Másson, kvikmyndagerðarmaður og fjölmiðlamaður, veltir því fyrir sér hvernig í veröldinni standi á því að almenn umferð við gosstöðvarnar á Reykjanesi sé ekki bönnuð að viðlögðum háum sektum.
Björgunarsveitir komu tugum einstaklinga til hjálpar í nótt en slæmt veður var á þessum slóðum og margir illa búnir. Grunur leikur á að nokkrir þeirra sem hugðust heimsækja gosstöðvarnir hafi hreinlega ofkælst. Um miðnætti voru um 130 bílar í vegkantinum við Suðurstrandaveg sem þýðir að nokkur hundruð manns hafi verið á svæðinu um miðnætti.
Sigursteinn hefur dvalið erlendis undanfarna mánuði, þá einna helst í Andalúsíu á Spáni og á Kanaríeyjum. Þar hefur hann búið við útgöngubann um nætur sem hann segir vera skynsamlega aðgerð. Sigursteinn setur atburðina í nótt í samhengi við þær aðgerðir sem hafa verið í gildi erlendis. Nú þegar smitum fjölgar í samfélaginu sé ekki á það bætandi að bjarga þurfi fólki um miðjar nætur.
„Þvílík geggjun! Hvernig í veröldinni stendur á því að almenn umferð við gosstöðvarnar er ekki bönnuð að viðlögðum háum sektum? Nú eru innanlandssmit að blossa upp að nýju og þá standa á annað hundrað björgunarsveitarmenn víða að í þessu upp um heiðar og fjöll,“ segir hann og bætir við að sagan virðist vera að endurtaka sig.
„Innanlandskæruleysið að valda vandræðum á meðan púðrið er sett í yfirgengilegar aðgerðir á landamærum. Í nærri sjö mánuði hef ég búið við útgöngubann um nætur. Það er skynsamleg aðgerð sem dugar býsna vel við að stemma stigum við smitum þvî kæruleysið nær hámarki um og eftir miðnætti. Slík ráðstöfun truflar líka og takmarkar minnst daglegt líf fólks. Það var klaufalegt og heimskulegt af Alþingi að útiloka þá ráðstöfun.“