Kvikmyndagerðar- og fjölmiðlamaðurinn Sigursteinn Másson greinir frá heldur óhugnanlegu atviki sem átti sér stað í síðustu viku en hann var þá staddur í Blómasetrinu í Borgarnesi.
„Ég upplifði skyndilegan ótta 10. ágúst þegar ég missti á einni mínútu líkamlegan mátt og gat varla talað,“ segir Sigursteinn í færslu á Facebook um málið en hann segir skjót og yfirveguð viðbrögð eigandans, Svövu, og dóttur hennar, Kötu, hafi skipt sköpum.
Hann lýsir því að hann hafi beðið fyrir hjálp frá almættinu í hljóði og spurt um breytingar sem hann þyrfti að gera í sínu lífi. „Ég prófaði svörin með sjálfum mér, eitt af öðru, og fékk svör þannig að í hvert sinn að ég hitti á rétt svar þá var eins og ýtt væri á rofa í rafmagnstöflu.“
Að sögn Sigursteins náði hann sér á innan við hálftíma en var síðan örþreyttur næstu daga eftir atvikið.
„Læknisskoðun og blóðprufur leiddu í ljós að ég er hraustur líkamlega og blóðþrýstingur eins og hjá unglingi. Það var andleg streita sem slökkti á höfuðrofanum mínum á mánudag í síðustu viku,“ segir Sigursteinn.
Með færslunni birtir Sigursteinn myndir af sér í Blómasetrinu í dag og lýsir því að hann væri kominn aftur til þess að reyna að skilja betur hvað átti sér stað og hvaða lærdóm megi draga af því.
„Nú er ég aftur kominn á þennan paradísarstað til að reyna að skilja betur þessa reynslu, þessa viðvörun, hlusta á sjálfan mig og umhverfið og undirbúa breytingar á minni tilveru.“