Sigursteinn Másson fjölmiðlamaður segir það góða niðurstöðu að aðeins 0,2 prósent þeirra sem farþega sem gengist hafa undir skimun á Keflavíkurflugvelli hafi reynst smitaðir af COVID-19. Hann segir að þessir einstaklingar séu líklega einkennalausir við greiningu og séu þegar komnir í einangrun.
Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom fram að tveir hefðu greinst með smit á Keflavíkurflugvelli í gær. Virk smit á landinu eru nú sex talsins.
„Við þessu mátti alltaf búast en hér er farið af stað með meira eftirlit, utanumhald og eftirfylgni en önnur ríki bjóða upp á og því lítið að óttast. Mjög mikilvægt skref og það einmitt núna á meðan fáir eru á ferðinni því veiran gæti verið á sveimi næstu árin og alls ekki kostur fyrir okkar eyju að loka og læsa og henda lyklinum. Við þurfum að læra að lifa með henni þannig að það valdi ekki meiri einangrun og efnahagslegum hamförum sem munu þá fljótt koma niður á heilsu og velferð landsmanna,“ segir Sigursteinn.
Kona ein bendir Sigursteini á að hún sé stressuð enda leigir hún út herbergi í gegnum Airbnb og er með tvo undirliggjandi sjúkdóma. „Hef líka verið með Airbnb og lítið í því að faðma gestina mína og nú heilsa ég þeim ekki með handabandi og hef því litlar áhyggjur. Með því að fara varlega er þetta allt í lagi,“ segir Sigursteinn.
Egill Helgason, sjónvarpsmaður og samfélagssrýnir, hefur verið gagnrýninn á opnun landsins og viðrað áhyggjur sínar. Hann tjáir sig undir færslu Sigursteins og segir: „Við erum á fáum dögum komin með fjögur ný virk smit í landið að því mér telst. Lögregluþjónn fyrir austan smitaðist.“
Fleiri hafa lagt orð í belg um niðurstöðurnar sem kynntar voru í dag. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og fyrrverandi varaforseti ASÍ, segist viðurkenna fúslega að hann hafi vissan kvíðboga fyrir því að verið sé að opna landið að nýju fyrir ferðamenn.
„Það hefur komið fram í máli sóttvarnalæknis að einkennalausir einstaklingar sem eru með kórónusmit geta gefið falska niðurstöðu við skimun og því áhætta að slíkir einstaklingar komist inn í landið þrátt fyrir að skimun í Leifsstöð hafi verið neikvætt,“ segir Vilhjálmur og bætir við:
„Okkur tókst að útrýma þessari óværu úr íslensku samfélagi með samstilltu átaki þjóðarinnar og hví í ósköpunum erum við að stefna þeim ávinningi í tvísýnu í ljósi þess að umtalsverð kórónusmit eru enn til staðar vítt og breitt um heimsbyggðina?“