Sigursteinn í áfalli: „Hér verður að grípa í taumana og það strax“

Sigursteinn Másson, fjölmiðlamaður og talsmaður Alþjóðadýraverndursjóðsins, segist hafa verið í áfalli þegar hann sá myndband af slæmri meðferð mera hér á landi við blóðtöku.

Málið hefur vakið mikla athygli og hafa Alþjóðlegu dýraverndar- samtökin Animal Welfare Foundation (AWF) birt 120 blaðsíðna skýrslu sem vekur alvarlegar spurningar um og áhyggjur af velferð dýra á Íslandi. Sigursteinn deildi frétt Stöðvar 2 þar sem brot úr myndbandinu var sýnt.

„Þetta er með því allra ljótasta dýraníði sem ég hef séð! Er í áfalli eftir að hafa horft á myndbandið af því hvernig farið er kerfisbundið með hross á Íslandi. Hér verður að grípa í taumana og það strax. Banna þessa ómannúðlegu blóðtöku í gróðaskyni og sækja til saka þá bændur og dýralækna sem hlut eiga að máli og eru augljóslega að brjóta dýravelferðarlög,“ segir Sigursteinn í færslu sinni.

Hann segir að myndirnar tali skýrt sínu máli um barsmíðarnar og pyndingarnar og aumt yfirklór þeirra sem eru staðnir að verki.

„Þótt ömurlegt sé upp á að horfa þá ættu allir að horfa á hvað hér er raunverulega í gangi. Næst mætti skoða sauðfjárbúskapinn með földum myndavélum svo ekki sé nú talað um svínaræktina. Svei attann!“