Fjölmiðlamaðurinn Sigursteinn Másson hvetur fólk til að anda aðeins með nefinu og sjá hvort þær aðgerðir sem tóku gildi í gær sýndi gildi sitt á næstu dögum.
Metfjöldi smita hefur greinst dag eftir dag síðustu daga og náði smitbylgjan nýjum hæðum í gær þegar 200 greindust með kórónuveiruna innanlands. Samkomutakmarkanir voru hertar á dögunum og mega nú 500 manns koma saman í stað 2.000 áður. Þá þurfa vínveitingastaðir að loka dyrum sínum tveimur tímum fyrr en áður auk þess sem grímuskylda hefur tekið gildi að nýju.
Í ljósi hárrar smittíðni síðustu daga hafa sumir velt því fyrir sér hvort ekki sé ástæða til að herða enn meira á samkomutakmörkunum. Sigursteinn er svo sannarlega ekki þeirrar skoðunar eins og hann sagði á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi:
„Var ekki verið að herða aðgerðir á Íslandi í dag? Hvernig væri nú að anda aðeins með nefinu og sjá hvernig þær virka næstu tvær vikur áður en allt fer í lok, lok og læs og aðventan verður eyðilögð? Af hverju þetta uppnám? Jú, vissulega mörg börn að greinast en þau hrista þetta ágætlega af sér. Sömuleiðis langsamlega flestir þeir sem eru bólusettir. Við munum sennilega næstum öll fá þessa veiru áður en yfir lýkur á næstu árum. Óumflýjanlegt. Og er þá ekki bara best að láta veiruna ganga yfir og að þjóðin fái aukið náttúrulegt ónæmi í stað þess að reyna að kæfa veiruna, sem auðvitað er ekki hægt, en kæfa þess í stað menningu, efnahag og atvinnulíf fyrir nú utan öll leiðindin? Lifum með þessu!“