„Óttinn má ekki ná tökum á okkur,“ segir Sigursteinn Másson, kvikmyndagerðarmaður og fjölmiðlamaður. Sigursteinn fékk símtal frá lögreglumanni síðastliðinn fimmtudag sem tjáði honum að hann þyrfti að vera í sóttkví til 23. mars.
„Ástæðan er sú að í námunda við mig, í flugi frá London til Íslands á sunnudaginn 8. mars, var einstaklingur sýktur af COVID19. Pínu óþægilegt að fá slikar fréttir en ég þakkaði lögreglumanninum fyrir það frábæra starf sem allt teymið á vegum Almannavarna, ríkislögreglustjóra, Landlæknis og sóttvarnalæknis er að vinna. Ég er einkennalaus enn þá af veirunni og ólíklegt að ég hafi smitast,“ segir Sigursteinn í pistli sem hann birti á Facebook í gær.
Sigursteinn segir að það sé vissulega áskorun að halda sig heima, hitta engan innandyra og þurfa að halda sig minnst tveimur metrum frá næstu manneskju sem hann hittir út. Þetta sé þó allt saman vel hægt. „Reyndar hægt að snúa þessu upp í áhugaverða og allt að því skemmtilega áskorun. Allt hefur allavega tvær hliðar. Nú er málið að láta jákvæðu hliðina snúa upp,“ segir hann.
Sigursteinn segir að nú sé gott tækifæri til að skapa nýja rútínu; vakna á morgnana, passa upp á mataræðið, svefn og hreyfingu. „Fara út, nær sama hvernig viðrar, í langan göngu- eða hlaupatúr og það er mjög mikilvægt að gera líkamsæfingar á hverjum degi. Allt þetta styrkir hvoru tveggja ónæmiskerfið og andlega líðan. Það sem ég þarf einkum að bæta er að minnka fréttaáhorf og hlusta frekar á góða tónlist eða hljóðbók.“
Sigursteinn skrifaði færsluna skömmu eftir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir tjáði sig um stöðu mála í viðtali í Silfrinu á RÚV. Hann kveðst þakklátur fyrir það að búa á Íslandi, sennilega hafi hvergi verið tekið jafn vel á málunum og hér á landi.
„Það er makalaust að Austurríkismenn skuli ekki hafa hlustað á hann þegar hann strax 4. mars varaði þá við því að miklar sýkingar væru að koma upp á skíðastöðum í landinu. Nú hafa þeir í panikk lokað landamærum sínum sem og Danir, Norðmenn og Bandaríkjamenn þótt ekkert fræðilegt liggi fyrir um gagnsemi þess, reyndar þvert á móti.“
Sigursteinn bendir að lokum á að nú þurfi að koma í veg fyrir brattann topp sem setur heilbrigðiskerfið og þjóðfélagið á hliðina. Það geti valdið fjöldadauða þeirra sem veikir eru fyrir.
„Við sem erum yngri og í góðu formi þurfum litlar áhyggjur að hafa af COVID19, okkar sjálfra vegna, en ber skylda til að vernda hina. Þetta er því eitt merkilegasta og mikilvægasta samfélagslega verkefni sem við höfum staðið frammi fyrir og við þurfum áfram að treysta á ráð og ákvarðanir þeirra sem best til þekkja. Óttinn má ekki ná tökum á okkur.“