Sigursteinn Másson, fjölmiðlamaður og kvikmyndagerðarmaður, hefur verið í sóttkví undanfarna daga. Hann er sem betur fer einkennalaus en var sendur í sóttkví þar sem hann sat í námunda við mann í flugi til Íslands þann 8. Mars síðastliðinn, en maðurinn hafði smitast af COVID-19.
Sigursteinn hefur haldið vinum og vandamönnum upplýstum um gang mála á Facebook-síðu sinni en hann losnar úr sóttkví þann 23. mars næstkomandi.
Sigursteinn segir að hann hafi haft nægan tíma til að velta hlutum fyrir sér undanfarna daga og segir hann að borið hafi á ósanngjarna gagnrýni á yfirvöld, þá einna helst Þórólf Guðnason sóttvarnalækni, Ölmu Möller landlækni og Víði Reynisson yfirlögregluþjón. Þetta fólk hafi passað upp á þjóðina síðustu daga og á faglegan og fallegan hátt.
„Það gleymist að ekkert ríki hefur gengið jafn langt í því að rekja samskipti við smitaða eins og gert hefur verið á Íslandi. Það hefur leitt til þess að einstaklega vel hefur tekist að einangra smitaða og setja fólk eins og mig sjálfan í sóttkví sem lenti einfaldlega í því að sitja í námunda við einn smitaðan mann í flugvél frá London.“
Sigursteinn ítrekar að hann sé ekki með nein einkenni og því að öllum líkindum án smits. Þrátt fyrir það sé hann í sóttkví og það geri hann með glöðu geði.
„Þetta er frábær vinna sem skilað hefur sér í því að hér hefur ekki þurft að grípa til alvarlegri aðgerða eins og útgöngubanns en það sjáum við nú gerast á Ítalíu, í Frakklandi og á Spáni. Einhverjir segja að það ætti að gera hér líka og að loka landinu með öllu en fyrir því eru einfaldlega engin faraldsfræðileg eða vísindaleg rök eins og sérfræðingarnir benda á.“
Sigursteinn bendir svo á að enginn á Íslandi hafi smitast af ferðamanni, þeir sem eru smitaðir hafi smitast á skíðum í Ölpunum og svo af öðrum landsmönnum.
„Ferðamennirnir eru ekki í það náinni snertingu við landsmenn að af þeim hafi stafað hætta og þá loka menn ekki landinu af því barasta. Það er engin ,,Þetta reddast" bragur á almannavörnunum. Þvert á móti er hvert skref úthugsað og fyrir því færð gild rök.“
Sigursteinn sendir þremenningunum og stjórnvöldum baráttukveðjur í þessari miklu óvissu sem nú er uppi vegna COVID-19.
„Ég dáist hreinlega að sóttvarnalækni, landlækni og fulltrúa Ríkislögreglustjóra. Ég dáist líka að stjórnvöldum þessa lands fyrir að fara í einu og öllu að ráðum vísindamanna og sérfræðinga á meðan að maður horfir dapur á leiðtoga sumra annarra ríkja í sínum pólitíska popúlisma og skotgröfum. Höldum áfram að treysta þessu góða fólki sem hefur sýnt og sannað á undanförnum dögum að þau eru okkar allra besta landslið.“