Fjölmiðlamaðurinn Sigursteinn Másson segist standa á krossgötum í lífi sínu rétt eins og trúlega margir aðrir. Hann hefur að undanförnu dvalið í Andalúsíu á Spáni.
Sigursteinn ætlaði upphaflega að vera átta daga í þessu fallega héraði en nú eru liðnar átta vikur og Sigursteinn enn á svæðinu. Hann segir að ekki sjái enn fyrir endann á veru hans þar.
„Nú er búið að loka héraðinu í 10 daga. Enginn kemst inn né út nema í gegnum alþjóðaflugvellina. Það hefði mátt segja mér tvisvar fyrir ári síðan að ég ætti eftir að vera um kyrrt í sama héraðinu á Spáni mánuðum saman. Venjulega hefði ég sennilega verið búinn að flækjast vítt og breytt um Spán, til Portúgals og Marokkó á mun styttri tíma. En það eru breyttir tímar og ég trúi því að ,,slow travel” sé komið til að vera,“ segir Sigursteinn í pistli á Facebook-síðu sinni.
Sigursteinn veltir svo fyrir sér veirunni og hvernig líf okkar hefur breyst að undanförnu – og sennilega til frambúðar.
„Ég stend á krossgötum rétt eins og ég held að við gerum öll. Heimsástandið og veiran neyðir mig til að hugsa hlutina upp á nýtt. Ég sé veiruna ekki sem óvin heldur alvarlega viðvörun um að við verðum að breyta lífsmáta okkar. Þetta er afleiðing þess hvernig við umgöngumst dýrin, heimkynni þeirra og náttúruna. Við höfum með atferli okkar skapað þessa veiru og þar með þetta ástand og hvert og eitt og í sameiningu þurfum við að snúa þróuninni við.“
Sigursteinn segir að tíminn sé naumur því stóra málið sé handan við hornið – óafturkræfar loftslagsbreytingar.
„Ég trúi því að almættið sé að taka í taumana og að við verðum að grípa þetta tækifæri, endurhugsa tilveru okkar í stað þess að hverfa aftur til þess sem var fyrir COVID19. Heimurinn allur situr í sömu súpunni og verður sameiginlega að bregðast við til lengri tíma. Trúi og vona að það muni nú gerast.“
Sigursteinn situr ekki auðum höndum á Spáni en á morgun kemur út áttundi og síðasti þátturinn í þriðju seríu Sannra íslenskra sakamála á Storytel.
„Í þáttunum reyni ég að varpa nýju ljósi á þekkt og alvarleg glæpamál. Er mjög þakklátur fyrir viðtökurnar. Nálgast viðfangsefnið frá fleiri hliðum en áður og hér í sunnanblíðunni hef ég tíma og svigrúm til að hugsa um lífið og tilveruna upp á nýtt og frá áður framandi sjónarhorni.“