Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera stjórnmálamaður og þó að Sigurlaug Gísladóttir, oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, hafi ekki verið lengi í pólitík er hún þegar farin að kynnast þeim mótvindum sem stundum blása.
Sigurlaug greinir frá því í spjallhópi flokksins á Facebook að síðu framboðssíðu hennar hafi verið lokað fyrirvaralaust í gær.
„Jæja alltaf upplifir maður eitthvað nýtt. Eins og þið vitið flest stofnaði ég sér fésbókarsíðu til að koma mínum stjórnmálaskoðun á framfæri. Nú hefur það farið fyrir brjóstið á einhverjum sem hefur látið loka síðunni minni, þar sem kvörtun hafði borist vegna óviðeigandi málefna,“ segir Sigurlaug.
Hún bætir við að það séu greinilega einhverjir sem telji málefni fatlaðs fólks vera óviðeigandi. „Eða kannski er það óviðeigandi að vilja sameina ríkisstofnanir nú eða kannski er ekki í lagi að gagnrýna heilbrigðiskerfið og einn möguleikinn er að einhver vilji ekki að smábátasjómenn fái að róa frjálst og óhindrað án kvóta,“ segir hún en þetta eru þau málefni sem hún hafði komið inn á áður en síðunni var lokað.
„Hvað ætli hafi farið svona hrottalega fyrir brjóstið á viðkomandi? Viðkomandi þekkir mig greinilega ekki mjög vel svo mikið er víst, því þetta er eins og að skvetta vatni á gæs og hefur því alveg öfug áhrif,“ segir hún og ætlar sér eflaust að ná þingsæti í haust.
Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er sem kunnugt er stofnandi Frjálslynda lýðræðisflokksins en hann kynnti Sigurlaugu til leiks um liðna helgi sem oddvita flokksins í Norðvesturkjördæmi.