Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa kíkt á mínar síður á vef Creditinfo.
„Í gær fór ég inn á mína síðu hjá Creditinfo og þar blasti við mér til mikillar undrunar að ég er vaktaður af tveimur aðilum þ.e. Kaupfélagi Skagfirðinga og Landsbankanum,“ segir Sigurjón sem segir að þessi sérstaka vöktun kaupfélagsins og Landsbankans á fjármálum hans sé æði undarleg þar sem hann er ekki í neinni skuld við hvorugan aðilan.
„Að vísu er ég með kreditkort hjá Landsbankanum, með heimild upp á 500 þús og á í óverulegum reiknisviðskiptum við KS, þar sem mér er til efs að heildarupphæð ársins nái 300 þús kr.“
Sigurjón segir óþægilegast að hafa ekki verið látinn vita af þessari upplýsingasöfnun sem hann segir að sé með öllu tilgangslaus.
„Mér finnst það vera lágmarks krafa gagnvart þeim aðilum sem ástunda vöktun s.s. KS og Landsbankanum að þeir láti viðskiptavini sína sem þeir vilja fygjast grannt með, vita hvað þeir séu að bauka, t.d. hvað upplýsingum þeir eru að leita eftir og hvernig maður getur komist hjá vöktuninni t.d. með því að hætta reiknisviðskiptum ofl.“
Margir lýsa yfir undrun á þessu í athugasemdum við færslu Sigurjóns og segjast einnig vera vaktaðir af mismunandi aðilum. „Stóri bróðir er víða,“ segir einn. Annar vísar í skilmála Creditinfo þar sem fram kemur að fyrirtæki og stofnanir í láns- og reikningsviðskiptum vakti kennitölur viðskiptavina sinna og hafi af því lögvarða hagsmuni.