„Ákvörðun stjórnenda Landspítalans að gefa starfsmönnum einn skó í jólagjöf var hvoru tveggja, vond og heimsk,“ segir Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, í pistli á vef sínum í morgun.
Starfsmenn fengu gjafabréf í Skechers-búðinni fyrir sjö þúsund krónur og Omnom-súkkulaði en Sigurjón bendir á að gjafabréfið dugi tæplega fyrir skópari í búðinni. „Til að nýta gjöfina verða starfsmennirnir að kaupa hinn skóinn í valdri skóbúð. Skóbúð Bjarna Ármannssonar fyrrverandi bankastjóra,“ segir Sigurjón og vísar í félagið S4S ehf. sem rekur nokkrar skóverslanir á höfuðborgarsvæðinu. Bjarni keypti fjórðungshlut í félaginu árið 2017.
„Fyrir Bjarna og hans fólk er þetta eflaust hið besta mál. Í þeirra heimi er þessu eflaust fagnað. Vel og lengi. Í raunheimi gegnir öðru máli. Allt, allt öðru. Hér þykir þetta einstaklega asnalegt og jafnvel verra en ekki. Kannski var betra að gefa ekki neitt,“ segir Sigurjón sem telur að þau sem tóku tilboði Bjarna og hans fólks hafi varla lagt sig fram í vali á jólagjöf.
„Það væri fróðlegt að sjá hvað þetta fólk gefur sínum nánustu á jólunum þar sem þau samþykktu að gefa starfsfólkinu, fólkinu sem hefur lagt líf sitt og heilsu í starf sitt nánast allt þetta ár, og jafnvel lengur, skó á annan fótinn í jólagjöf.“