Sigur­jón svekktur: Alltaf sama sagan – 20 mál svæfð í nefndum frá 2017

„Ríkis­stjórnin vill ekki hleypa málum, mörgum hverjum sam­hljóða kosninga­lof­orðum ríkis­stjórnar­flokkanna, til at­kvæða­greiðslu. Þar segja gjörðir meira en orð,“ segir Sigur­jón Arnórs­son, fram­kvæmda­stjóri Flokks flokksins, í að­sendri grein í Frétta­blaðinu í dag.

Sigur­jón segir að frá árinu 2017 hafi um 20 þing­mál Flokks fólksins verið svæfð í nefndum.

Bendir hann á að á þessu ári hafi flokkurinn lagt fram frum­varp um að bætur al­manna­trygginga hækkuðu í sam­ræmi við launa­vísi­tölu, sem hefði komið í veg fyrir vaxandi kjarag­liðnun, meðal annars hjá þeim sem lifa undir lág­marks­fram­færslu­við­miði fé­lags­mála­ráðu­neytisins. „Að­eins þing­menn ríkis­stjórnarinnar felldu frum­varpið, allir aðrir þing­menn voru því fylgjandi,“ segir Sigur­jón meðal annars.

Sigur­jón bendir þó að frum­varp flokksins árið 2018 hafi fengið brautar­gengi en með því voru felldar niður skerðingar á styrkjum sem ör­yrkjar og líf­eyris­þegar fá til að standa straum af kostnaði við út­gjöld vegna veikinda.

„Þessi breyting sparar 6.000 ör­yrkjum og eldri borgurum að meðal­tali um 120.000 kr. á ári. Þegar þetta mál var rætt á Al­þingi viður­kenndi ríkis­stjórnin að þessar skerðingar hefðu aldrei átt að eiga sér stað og sagði þær hafa við­gengist fyrir mis­tök. Þetta kom hags­muna­sam­tökum aldraðra og ör­yrkja tals­vert á ó­vart, enda höfðu þau barist fyrir af­námi þessara skerðinga ára­tugum saman. Sú bar­átta fór greini­lega fram hjá fjór­flokknum.“

Þá nefnir Sigur­jón að flokkurinn hafi unnið dóms­mál fyrir hönd elli­líf­eyris­þegar árið 2019. Þá komst Lands­réttur að þeirri niður­stöðu að ríkið hefði brotið gegn eldri borgurum með því að skerða greiðslur til þeirra með aftur­virkri lög­gjöf.

„Niður­staðan í þessu máli varð til þess að ríkið greiddi 32.000 eldri borgurum um sjö milljarða króna með vöxtum. Við­brögð fé­lags- og barna­mála­ráð­herra við þessari niður­stöðu var ekki af­sökunar­beiðni fyrir lög­brotin. Hann valdi þess í stað að gagn­rýna niður­stöðuna þar sem hann hefði gjarnan viljað fjár­festa þessum peningum í ein­hver önnur verk­efni. Peningum sem ríkið aflaði með ó­lög­mætum skerðingum.“