Sigur­jón: „Staða Katrínar er henni stór­hættu­leg“

„Aum er staða Katrínar Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra,“ segir rit­stjórinn Sigur­jón M. Egils­son í leiðara á vef Miðjunnar í dag. Sigur­jón gerir þar stöðu Katrínar Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra að um­tals­efni en Sigur­jón segir að hún sé í mjög þröngri stöðu nú þegar tíu mánuðir eru til kosninga.

„Það er ekki nóg með að flokkurinn hennar nálgast dauða­línuna, hægt og örugg­lega. Hitt er verra að hún nýtur ekki stuðnings innan eigin ríkis­stjórnar til að gera, eða leggja til, breytingar á stjórnar­skránni,“ segir Sigur­jón.

Hann bendir á að hags­munir margra séu þeir að ekki verði hróflað við þeim hlutum stjórnar­skrárinnar sem þrengir að af­komu þeirra.

„Þar fer fremst út­gerðin. Þar er barist. Vopn út­gerðarinnar eru tvö; Mogginn og Sjálf­stæðis­flokkurinn. Svo ein­kenni­legt sem það er óttast Sjálf­stæðis­flokkurinn Moggann, og út­gerðina.“

Sigur­jón segir að sam­starfs­flokkarnir í ríkis­stjórn, Sjálf­stæðis­flokkur og Fram­sóknar­flokkur, hafi skellt á hana hurðum.

„Staða Katrínar er henni stór­hættu­leg. Svo aum að hún þarf að leggja fram þing­manna­frum­varp um stjórnar­skrár­breytingar. Sam­starfs­flokkarnir báðir hafa skellt á hana hurðum. Til að forðast full­komna sneypu­för verður Katrín, for­sætis­ráð­herra lýð­veldisins, að treysta á stjórnar­and­stöðuna. Til að bjarga eigin pólitísku lífi.“

Sigur­jón segir að þar sé ekki á vísan á róa og hætt sé við því að Píratar fallist seint á mála­miðlunar­til­lögur Katrínar.

„Leið­angur Katrínar verður há­ska­för og ó­víst hvernig fer. Árum saman hefur Sjálf­stæðis­flokkurinn barst gegn breytingum og sagt að ekki mega breyta stjórnar­skránni nema með breiðri sátt,“ segir Sigur­jón sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Nú er vafinn sá, hvernig fer fyrir Katrínu? Missir hún fótanna vegna and­stöðu innan eigin ríkis­stjórnar? Já, það er bara lík­legt.“