Sigurjón skipti þingmönnum í þrjá flokka: Nú hefur fjórði flokkurinn bæst við

Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar og einn reynslumesti blaðamaður landsins, segist hafa stytt sér stundirnar í þinginu fyrir rúmum 30 árum þegar hann var þingfréttamaður. Gerði hann sér að leik að skipta þingmönnum upp í þrjá ámóta stóra hópa þegar umræður voru langar og leiðinlegar.

„Í fyrsta hópinn setti ég þá þingmenn sem mér fannst vera stjórnmálamenn með pólitískar hugsanir. Hverjar sem þær voru,“ segir hann og bætir við að í annan hópinn hafi hann sett þá þingmenn sem voru sómakært fólk.

„Fólk sem hefði staðið sig vel eða ágætlega hvar sem það hefði verið við störf. Fólk sem brann ekki fyrir skoðanir sínar en skilaði sínu. Lásu vel og settu sig inn í þau mál sem voru í þinginu,“ segir hann í pistli á vef Miðjunnar.

Þriðji hópurinn var svo skipaður ónytjungum, það er þingmönnum sem voru frekar í dagvistun á Alþingi en að það væri til nokkurs gagns. „Fólk sem mætti illa, var  mest á göngum þinghússins segjandi sömu sögurnar aftur og aftur.“

Í pistli sínum segir Sigurjón að nú á dögum dugi varla að skipta þingmönnum í þrjá hópa. Nærri lagi væri að hafa hópana fjóra talsins.

„Nú þarf nýjan hóp og hann skipa þá hagsmunagæslufólk. Fólk sem í raun er gert út til að vinna að hagsmunum þeirra sem í raun gera fólkið út. Nú getur hver sem er stillt þingmönnum upp í þessa fjóra ámóta stóra hópa.“