Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón M. Egilsson og hundurinn hans Lopi lentu í sannkölluðu ævintýri nýverið. Sigurjón segir söguna á Facebook:
„Lopi og ég vorum á gangi í óskemmtilegu veðri. Skyndilega hljóp hann að snjóruðningi sem var úr leið fyrir okkur. Hann gróf og gróf þar til hann kom hlaupandi til mín með eitthvað svart í kjaftinum. Ég bað hann að sýna hvað hann væri með. Það reyndist vera seðlaveski með greiðslukortum og ökuskírteini,“ segir Sigurjón.
Þegar heim var komið fann Sigurjón eiganda seðlaveskisins á Facebook.
„Það var ung kona sem hafði tapað veskinu viku fyrr og alls ekki þar sem Lopi fann það.“
Sigurjón er með hugmynd um hvernig það endaði þarna:
„Veskið hlýtur að hafa verið á skóflu snjóruðningstækisins og losnað þar sem Lopi fann það.“