Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, segir að íslenska heilbrigðiskerfið sé ekki jafn magnað og Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lýsir því.
Ásmundur greindi frá því í færslu um helgina að hann hefði nýlega fengið nýjan gervilið í vinstra hné. Hrósaði Ásmundur íslenska heilbrigðiskerfinu í hástert og sagði að allt skipulag í kringum aðgerðina hefði verið til fyrirmyndar.
„Ég er fullur þakklætis til heilbrigðisstarfsfólksins okkar fyrir öll afrek þeirra,“ sagði Ásmundur.
Sigurjón skrifar pistil á vef sinn, Miðjuna, þar sem lýsir sinni upplifun af íslensku heilbrigðiskerfi. Segir hann að kerfið sé ekki jafn stórfenglegt og Ásmundur lýsir.
„Við erum eflaust allt of mörg sem tökum ekki undir fögnuð þingmannsins. Mér er óljúft að skrifa um sjálfan mig, en ætla samt að gera það,“ segir Sigurjón sem lenti í alvarlegu vélhjólaslysi árið 2014.
„Taugaskemmdir sjá til þess að ég er með stöðuga verki. Stundum allt of mikla. Oft óþolandi. Margt hefur verið reynt. Reykjalundur var það besta. Svo kom að verkasviði Landspítalans. Fyrir um ári var reynt að sprauta sterum þar sem verkirnir myndast. Það dugði örfáa daga. Þá var næst að reyna einhverskonar rafaðgerð. Svo kom Covid. Það var hringt og sagt að þess vegna yrði að fresta „aðgerðinni“. Ég beið og ég beið og ég beið.“
Sigurjón segir að svo hafi verið hringt frá spítalanum og honum tjáð að læknirinn væri hættur. Lofað var að mál hans yrði borið undir aðra lækna og hann látinn vita strax. „Nú bíð ég og bíð ég og bíð ég.“
Sigurjón segir að kannski sé íslenska heilbrigðiskerfið ótrúlega magnað kerfi. Það sé mögulega rétt hjá Ásmundi en upplifun hans sé önnur.
„Þegar verkirnir verða hvað verstir hugsa ég mér hvort ekki sé léttast að hætta þessu bara. Stökkva fyrir björg. En það er ábyrgðarleysi. Þannig hugsunum verður að ýta frá sér. Þær er samt ekki hægt að deyða. Þær koma aftur og aftur og aftur.“
Sigurjón veltir fyrir sér hvernig staðan er hjáöllum hinum sem eru með ámóta verki og býr kannski ekki við góða félagslega eða fjárhagslega stöðu. „Hefur það stokkið fyrir björg?“
Hann segir að betra sé að segja nei strax en draga fólk á asnaeyrunum í langan tíma. Hann endar pistilinn á þessum orðum:
„Rétt er að óska Ásmundi góðs bata. Samt verður hann að vita að heilbrigðiskerfið er ekki eins stórfenglegt og hann heldur. Alls ekki.“
Íslenska heilbrigðiskerfið er ótrúlega magnað kerfi. Ég fékk að reyna það fyrir tæpri viku síðan þegar ég fékk nýjan...
Posted by Ásmundur Friðriksson on Sunnudagur, 7. febrúar 2021