Sigur­jón með opið bréf til Þór­dísar: Vill að hún segi af sér – „Þú verður aftur ráð­herra“

Sigur­jón M. Egils­son, einn reyndasti blaða­maður landsins, skrifar opið bréf til Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur þar sem hann hvetur hana til að segja af sér ráð­herra­em­bætti.

Sigur­jón skrifar bréfið á vef sinn Miðjuna þar sem hann er rit­stjóri og eig­andi. Þór­dís Kol­brún var mikið í fréttum í síðustu viku eftir að hafa hitt vin­konur sínar. Á myndum mátti sjá að tveggja metra reglan var ekki virt og þá naut hluti vina­hópsins sér­stakra fríðinda. Þór­dís Kol­brún baðst síðar af­sökunar á málinu, en að mati Sigur­jóns er það ekki nóg.

„Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur segðu af þér ráð­herra­em­bættinu. Haltu á­fram á þingi og sem vara­for­maður Sjálf­stæðis­flokksins. Þar er stutt til kosninga og nýttu þann tíma til að styrkja stöðu þína. Þú verður að komast fram fyrir Harald Bene­dikts­son á fram­boðs­lista flokksins þíns. Farðu að vinna að því,“ segir Sigur­jón sem virðist hafa miklar mætur á Þór­dísi sem þing­manni.

Sigur­jón segir að það sé vara­for­manni Sjálf­stæðis­flokksins ekki sam­boðið að vera fimmti þing­maður síns kjör­dæmis. „Að auki er Haraldur ekki svo stór og sterkur að þú getir sæst á að vera í skugga hans. Jafn­vel í hættu með að ná ekki þing­sæti,“ segir Sigur­jón í pistlinum. Þá hvetur hann hana til að leggja fram á­kveðin gögn.

„Sam­hliða því skaltu birta stað­festingar á að þú hafir ekki þegið vel­gjörning þegar þú djammaðir með vin­konum þínum. Gerðu þannig hreint fyrir þínum dyrum, hvað það varðar. Siðan skaltu stað­festa við okkur öll að þú hafir ekki verið með ráð­herra­bíl­stjórann í vinnu þennan dag,“ segir Sigur­jón og bætir við að þegar þetta er af­staðið skuli hún berjast fyrir stöðu sinni innan þing­flokksins og hjá kjós­endum.

„Þetta er von­laust eins og það er. Þú veist að þú ert meðal öflugri þing­manna þíns flokks,“ segir Sigur­jón sem hefur fjallað um pólitík mörg undan­farin ár, meðal annars í út­varps­þættinum Sprengi­sandi á Bylgjunni.

„Ég hef meira en þrjá­tíu ár reynslu af skrifum um ís­lensk stjórn­mál. Tel mig vita hvað ég er að segja. Legg til að þú hið minnsta hugsir um þessi ráð. Gangi þér annars vel.“

Sigur­jón endar svo greinina á að benda Þór­dísi á að hún sé ekki ó­missandi, þjóðin komist af þó hún hætti sem ráð­herra. „Þú veist, eins vel og ég, að ríkis­stjórnin mun halda á­fram að loknum kosningum. Ein­hver nú­verandi minni­hluta­flokkanna kemur til liðs við ykkur. Og þú verður aftur ráð­herra.“