Sigur­jón: Hvað verður um Katrínu? „Virðist ein­angruð í eigin ríkis­stjórn“

Sigur­jón M. Egils­son, fjöl­miðla­maður og rit­stjóri Miðjunnar, segir að staða Katrínar Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra kunni að vera á merkum tíma­mótum.

„Hún teflir djarft. Katrín hefur tekið að sér að túlka vilja þess fólk sem skrifaði vilja til að nýja stjórnar­skráin verði sam­þykkt á Al­þingi,“ segir hann í pistli á Miðjunni og vísar í við­tal Kast­ljóssins við Katrínu í gær­kvöldi. Þar sagði hún að þeir rúm­lega 43 þúsund sem skrifuðu undir á­skorun þess efnis að Al­þingi sam­þykki nýja stjórnar­skrá vilji vissu­lega breytingar á stjórnar­skrá, en ekki endi­lega það sem það sam­þykkti með undir­skriftum sem var að ný stjórnar­skrá stjórn­laga­ráðs ætti að taka gildi.

„Þetta er djarfur leikir hjá for­sætis­ráð­herra. Sjálf ætlar hún, ein og sér, ekki í nafni ríkis­stjórnarinnar eða eigin þing­flokks, að leggja til breytingar á gildandi stjórnar­skrá. Mögu­lega eru margir fyrr­verandi kjós­enda Katrínar og Vinstri grænna, meðal þess fólks sem skrifaði undir. Geti það fólk ekki sæst á fram­göngu for­sætis­ráð­herra nú muni það koma fram í fylgi við Katrínu og VG,“ segir Sigur­jón sem segir að staða Katrínar sé þröng.

„For­sætis­ráð­herra virðist ein­angruð í eigin ríkis­stjórn. Hinir flokkarnir, og jafn­vel hennar eigin, eru ekki og verða ekki sam­ferða Katrínu í þessu mjög svo við­kvæma og pólitískt erfiða máli.“

Þá segir Sigur­jón að Katrín hafi brennt margar brýr að baki sér og mestu muni þar um U-beygjuna til Val­hallar eftir kosningar. Margir fyrrum kjós­endur muni seint fyrir­gefa það.

„Svo merki­legt sem það er, er Katrín for­sætis­ráð­herra ein að berjast fyrir eigin breytingum á stjórnar­skrá. Hefur ekki eigin ríkis­stjórn með sér og mjög vafa­samt er að meiri­hluti Al­þingis fylgi henni. Fari svo, hvað verður um Katrínu þá?“