Sigur­jón hitti heims­frægan leikara á sundi í Mið­jarðar­hafinu

Sigur­jón M. Egils­son, fjöl­miðla­maður og rit­stjóri Miðjunnar, segir býsna skemmti­lega sögu af því þegar hann hitti heims­frægan leikara á sundi í Mið­jarðar­hafinu.

Leikarinn sem um ræðir er enginn annar en Sean Connery, en hann lést eins og kunnugt er í dag, ní­ræður að aldri. Connery er án nokkurs vafa einn þekktasti leikari 20. aldarinnar, en hann túlkaði James Bond á eftir­minni­legan hátt í sjö myndum um njósnara hennar há­tignar. Þá hlaut hann Óskars­verð­launin árið 1988 fyrir besta leik í auka­hlut­verki.

Sigur­jón skrifaði skemmti­lega færslu á Face­book-síðu sína í dag um augna­blikið þegar hann hitti Connery, en þá hafði hann skellt sér í sjóinn á­samt syni sínum þegar þeir rákust á leikarann fræga fyrir algjöra tilviljun.


Mætti Sean Connery á sundi í Miðjarðarhafinu

„Í fyrstu Mall­or­ca­ferðinni mættum við Janus Sean Connery á sundi í Mið­jarðar­hafinu.

Ströndin sem við vorum við var innst í litlum firði. Að­eins utar við fjörðinn voru glæsi­hús glys­fólksins. Utan við húsin voru segl­brettin geymd. Lágu við festar.

Ég hafði keypt fínustu vind­sæng og við feðgar fórum oft út í fjarðar­mynnið. Janus var á dýnunni en ég fyrir utan og synti með henni. Á lands­tími sáum við tvo menn koma syndandi út frá stóru og fínu húsunum. Mér fannst sem þeir væru í vanda svo ég setti stefnuna að þeim. Í þann mund sem ég kom að þeim náðu þeir að einu brimbrettinu.

Og viti menn. Annar þeirra var njósnari hennar há­tignar. Eða réttara sagt Sean Connery. Hann var hinn kurteisasti. Kastaði kveðju á okkur feðga og gat til kynna að allt væri eins og það átti að vera.

Við héldum á­fram í land og þegar þangað var komið sögðum við hvern við hefðum hitt. Flestir sögðu okkur segja ó­satt. Til hvers áttum við að gera það?

En blessuð sé minning „sund­fé­laga“ okkar.“