Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón M. Egilsson gerir uppnámið sem varð á Alþingi í gær að umtalsefni í pistli á vef Miðjunnar.
Jón baðst afsökunar í gær á að hafa ásakað þingmann minnihlutans og nefnda Alþingis um að þiggja mútur vegna veitingar ríkisborgararéttar.
Óhætt er að segja að þessi orð hans hafi valdið usla á Alþingi og var þeim mótmælt harðlega.
„Vel má vera að Jón dómsmála finni vel til sín í starfi ráðherra. Hann verður samt að muna hvað Alþingi er. Við vitum öll að Alþingi hefur ekkert úrslitavald. Það gera ráðherrar,“ segir Sigurjón í pistli á Miðjunni.
„Þrátt fyrir hvað þingið hefur sett mikið niður við harða yfirstjórn ráðherra, verða þeir samt að gá að því að ganga ekki yfir þingið og þingmenn á skítugum skónum,“ segir Sigurjón og bætir við að Jón hafi sýnt fádæma dónaskap.
„Framganga hans í gær sló öll fyrri met hans. Eitthvað yfirklór á Facebook er ekki neitt. Jón verður að gera betur. Hann verður að tala til þingsins við upphaf fundar í dag,“ segir Sigurjón og bætir við að Bjarni Benediktsson formaður hafi einnig gengið ansi langt í gær.
„Samt ekkert á við það sem Jón gerði. Vandræðastundir Bjarna í þinginu verða sífellt tíðari. Augljóslega lítur hann niður á þingmenn stjórnarandstöðunnar. Hann getur ekki leynt hvað honum þykir um suma þingmenn,“ segir Sigurjón sem endar pistilinn á þessum orðum:
„Nú má spyrja: Krafsaði Jón á Facebook eftir fyrirskipun Bjarna eða ekki? Væri spennandi að vita. Styrkti Jón stöðu sína í ráðherraliðinu eða veikti? Það kemur í ljós innan fárra daga. Jón Gunnarsson verður að fara sér hægar. Hætta að haga sér sem fáviti. Ef hann getur.“