Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, var gáttaður eftir að hafa horft á vandaða þáttaröð í fjórum hlutum um sigurgöngu karlaliðs Víkings í fótboltanum í sumar.
Í þáttunum fengu áhorfendur innsýn í síðustu mánuðina hjá Kára Árnasyni, margreyndum landsliðsmanni, og Sölva Geir Ottesen, fyrrverandi landsliðsmanni, á knattspyrnuferli þeirra en báðir lögðu þeir skóna á hilluna í haust.
„Eftir að hafa horft á þættina fjóra um sigurgöngu Víkinga á liðni leiktímabili er ég eiginlega alveg gáttaður. Aftur og aftur og aftur notuðu þrír miðaldra menn, Arnar Gunnlaugsson, Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen orðskrípið „fokking“ við eiginlega öll tækifæri. Kári sennilega oftar en hinir,“ segir Sigurjón sem er harður KR-ingur.
„Þetta er ljóður á annars ágætri framkomu þremenninganna. Sem stuðningsmaður KR fannst mér skína í gegn andúð Kára á mínu félagi. Það er samt smámunir miðað við orðaforðann,“ segir Sigurjón í pistli á vef Miðjunnar sem ber yfirskriftina „Fokking þetta og fokking hitt“.
Hann tekur fram að lokum að afrek þremenningana séu mikil og hann meti þau mjög.
„Þeir stóðu sig með miklum ágætum. Munum samt að það læra börnin sem fyrir þeim er haft.“