Sigurjón finnur til með Helga: „Gættu þín, símarnir þínir eru hleraðir“

Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri og fréttastjóri til fjölmargra ára, bendir á að mörgum sem starfa við fréttamennsku hafi verið hótað og stundum illilega. „Sjaldan, og jafnvel aldrei, hafa hótarar látið til skara skríða. Nú hefur það gerst,“ segir Sigurjón í pistli sem birtist á vef Miðjunnar í dag.

Sigurjón vísar þarna í mál Helga Seljans fréttamanns, en eins og kunnugt er hafa forsvarsmenn Samherja reynt að gera honum lífið leitt að undanförnu. Sigurjón segir að Samherji hafi ráðist að lífi og framtíð Helga af miklu afli.

„Tvennt virðist í spilum Samherja. Annars vegar að særa Helga svo hann hætti skrifum um Samherja. Hitt er að vara aðra við.“

Sigurjón bendir einnig á að blaðamenn og fréttamenn séu almennt á frekar lágum launum. „Eiga þeir að ganga óhikað að verki til segja frá aðferðum Samherjamanna? Fyrirtækis sem meira að segja er með hálaunaða einkaspæjara á sínum snærum.“

Sigurjón segir að leikurinn, ef leik skyldi kalla, sé ójafn og segir að sterk fjárhagsstaða Samherja gagnist þeim víða. „Eins og fréttir herma. Vanmáttugur fréttamaður má sín lítils gegn risanum. Staða Helga Seljan er ekki góð.“

Sigurjón kannast við það á eigin skinni hvernig er að sitja undir hótunum vegna starfa sinna. Hann segir a‘ð honum hafi verið hótað illilega og stundum hafi farið um hann.

„Verst var þegar hótað var að gera börnum mínum tjón. Ég kærði til lögreglu sem tók málinu ekki alvarlega. Hélt uppi málstað hótarans,“ segir Sigurjón sem rifjar upp að eitt sinn hafi hann verið að vinna viðkvæmt fréttamál.

„Þá var hringt í síma annars blaðamanns. Hann var beðinn um að kalla á mig í símann. Sá sem hringdi vildi ekki tala við mig í símann minn. Hann sagðist vera lögreglumaður og sagði svo: „Gættu þín, símarnir þínir eru hleraðir.“ Helga Seljan er gert erfitt fyrir. Það er ómögulegt að búa við aðgerðir eins og hann þarf að þola. Von okkar hlýtur að vera sú að hann komist áfram í starfi sínu þrátt fyrir mikil óþægindi. Jafnvel persónulegar njósnir.“