Sigur­jón er læknir og er ekki ró­legur þessa dagana

„Ég var aldrei ó­ró­legur yfir Co­vid í vor. Ég vissi að við værum eins vel undir­búin og hægt var til að taka við þeim sjúk­lingum sem kæmu og að þjóðin sem heild myndi ná að brjóta þennan kúf og tak­marka fjöldann sem við þyrftum að sinna,“ segir Sigur­jón Örn Stefáns­son svæfinga­læknir.

Sigur­jón skrifaði færslu á Face­book-síðu sína í fyrra­kvöld, sama dag og til­kynnt var að 99 hefðu greinst með kórónu­veiruna. Í gær bættust 87 í hópinn og í dag 94 ein­staklingar. Segja má að staðan sé orðin býsna skugga­leg með til­liti til fjölda smita.

Eins og að framan greinir segist Sigur­jón ekki hafa verið ó­ró­legur í vor þegar fyrsta bylgjan gekk yfir. En staðan í dag er önnur. Sigur­jón veitti Hring­braut leyfi til að birta færsluna.

„Nú í dag er ég hálf ó­ró­legur. Ekki vegna þess að við séum verr undir­búin því það erum við ekki. Ég er ó­ró­legur því mér finnst komin þreyta í fólk yfir þessu, mér finnst margir ekki lengur vera að taka mark á því sem þarf að gera og það er fá­rán­legt. Það er fá­rán­legt því núna í dag lifum við EKKI for­dæma­lausa tíma. Við vitum alveg hvað þarf að gera til að minnka skaðann, það eru for­dæmi fyrir því,“ segir hann.

Sigur­jón birti sam­bæri­lega mynd og hér að ofan í vor til að minna fólk á að það væri ekkert grín að fá veiruna. Hvatti hann jafn­framt fólk til að fylgja fyrir­mælum. „Nú, nokkrum mánuðum og nokkrum dauðs­föllum seinna birti ég nýja mynd en skila­boðin eru þau sömu,“ segir hann.

Eins og að framan greinir birti hann færsluna sama dag og 99 smit greindust og síðan þá hefur staðan ekki batnað mikið. „Ein­föld töl­fræði segir mér að einn eða tveir af þessum hundrað muni ég þurfa að sinna á gjör­gæslu. Ekki láta mig þurfa að sinna þér á gjör­gæslu!,“ segir hann að lokum.