Sigurjón: Bubbi reif þingheim upp á rassgatinu – Katrín þorir ekki

Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri og fréttastjóri til fjölmargra ára, segir að tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hafi rifið þingheim upp á rassgatinu. Sigurjón skrifar pistil um málið á Miðjuna.

Bubbi gagnrýndi þingmenn harðlega um helgina fyrir þögn þeirra í Samherjamálinu og árásir fyrirtækisins á starfsmenn RÚV, einkum Helga Seljan. Sigurjón segir að það hafi verið alveg rétt hjá Bubba að þögn þingmanna um málið væri ærandi.

„Eftir að hann tjáði sig hafa nokkrir þeirra lifnað við. Komist í gegnum rimla hugans. Þó ekki forsætisráðherrann sem tiplar á tánum. Eins og hún þori ekki. Þetta er ólíkt þeirri Katrínu Jakobsdóttur sem við áður þekktum,“ segir Sigurjón í pistli sínum.

Hann segir að þingmenn verði að vita að ekki lengur að stíga upp og kasta fram nokkrum spurningum í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi.

„Málið er stærra en svo. Miklu, miklu stærra. Samt má ekki lasta það litla sem þingmenn þó hafa gert. Það þarf meira. Það þarf að tryggja stöðu fólks eins og Helga Seljan. Hann hefur byggt fréttir sínar á gögnum og viðtölum. Eins og blaðamenn gera. Á hann standa vindar. Kaldir norðanvindar.“

Sigurjón minnist einnig á viðtal Stundarinnar við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra þar sem hann sagði hreint út að Íslandi væri að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum. Vísaði hann meðal annars til Samherja í máli sínu og kæru fyrirtækisins til lögreglu gegn nokkrum starfsmönnum bankans.

Sjá einnig: Ásgeir fær mikið hrós: „Maður ársins? Hann siglir hraðbyri að þeim titli“

Sigurjón segir að Ásgeir hafi þorað að segja það sem hann sagði, en staða hans kunni að breytast. „Hans æðsti yfirmaður er Katrín Jakobsdóttir. Ekki er hægt að skilja annað en að hún telji sig eitt og annað vantalað við Ásgeir,“ segir Sigurjón og vísar í ummæli hennar á Alþingi í gær. Þar kallaði hún eftir nánari skýringum frá seðlabankastjóra, um væri að ræða stóra staðhæfingu um það hvernig hagsmunaaðilar beita sér og hvaða gagnsæi ríkir um það.

Sigurjón segir að ekki sé annað að sjá en að Katrín sé föst í neti Samherja. „Öðruvísi mér áður brá. Þetta er hreint magnað allt saman. Hafi þeir Ásgeir og Bubbi þökk fyrir.“