Sigurjón áhyggjufullur: Óttast að Suðurnesin verði ruslakista góða fólksins í Reykjavík

Sigurjón Hafsteinsson, íbúi í Reykjanesbæ, lýsir yfir áhyggjum sínum af hugmyndum þess efnis að reisa svokallaðan Hringrásargarð á Suðurnesjum.

Sveitarfélögin á Suðurnesjum og tíu fyrirtæki að auki skrifuðu á dögunum undir viljayfirlýsingu um að koma garðinum á fót, meðal annars í þeim tilgangi að stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi á svæðinu.

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag lýsir Sigurjón þungum áhyggjum og segir það merkilegt að í sömu viku og tveir þingmenn kjördæmisins, þeir Birgir Þórarinsson og Ásmundur Friðriksson, komi með þá frábæru þingsályktunartillögu að kalla eftir rannsóknum á nýgengi krabbameins á Suðurnesjum komi fréttir þess efnis að nú skuli efla þungaiðnað í Helguvík sem tilheyrar Reykjanesbæ. Segir Sigurjón að til standi „að safna og aka öllum þeim viðbjóði sem önnur sveitarfélög hafna alfarið undir nýjum formerkjum „hringrásargarðs“.

Sigurjón segir ljóst að ekkert annað sveitarfélag vill slíkan garð í sínum heimahögum.

Stöldrum aðeins við og tölum um staðreyndir: Árlegt aldursstaðlað nýgengi krabbameins á landsvísu er þannig að Suðurnesin (Reykjanesbær) eru komin upp fyrir höfuðborgarsvæðið hjá körlum og eru á svipuðu róli og höfuðborgarsvæðið hjá konum, með öðrum orðum: Við Suðurnesjamenn (Reykjanesbær) erum með hæsta nýgengi krabbameins á landsvísu en við erum líka með mesta atvinnuleysið á landsvísu.“

Sigurjón segist hafa fullan skilning á því að kjörnum fulltrúim sé mikið í mun að vinna bug á atvinnuleysi með öllum tiltækum ráðum. „En þá hljóta sömu aðilar að spyrja sig: Er það heilsunnar virði að samþykkja frekari þungaiðnað svo nálægt næstu íbúabyggð Reykjanesbæjar, svo ekki sé minnst á enn frekari þungaflutninga um fjölfarnasta þjóðveg og eina mestu slysagildru landsins, þ.e.a.s. Reykjanesbrautina?“

Sigurjón segir að samkvæmt kynningu hringrásargarðsins sé talað um 11-12 ferðir daglega um Reykjanesbraut og inn í Helguvík, þungaflutninga með öðrum orðum.

„Spyrjið ykkur þeirra spurningar: Hverju veldur að tíðni krabbameins er jafn há og raun ber vitni hér á Suðurnesjum? En um leið: Hvernig ætlum við íbúar að sporna gegn slíkri þróun? Ætlum við að halda áfram að hlusta á misgóðar hugmyndir kjörinna fulltrúa kortér fyrir kosningar, hugmyndir frá pólitíkusum sem sumir hverjir búa ekki á Suðurnesjum, fólki sem sumu hverju gæti ekki staðið meira á sama um framtíð Suðurnesja, eða ætlum við að stoppa þessa þróun og gefa réttu skilaboðin, skilaboð sem eru að Suðurnesin eru og verða ekki ruslakista góða fólksins í 101 Reykjavík?“

Sigurjón segir að íbúar eigi miklu betra skilið og er það von hans og trú að bæjarstjórnir og bæjarráð þeirra bæjarfélaga sem hvað mest eiga undir að ofangreint verði að veruleika að það hugsi hlutina til enda.

„Það er að segja áður en það leggur blessun sína yfir slíka afarkosti í atvinnuleysinu mikla, afarkosti sem munu á endanum ekki gera neitt nema setja stein í götu framtíðarbúsetu íbúa hér um slóðir.“