Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar og fjölmiðlamaður til áratuga, segir að það veki furðu hversu margir eru pirraðir þessa dagana. Sigurjón veltir þessu fyrir sér eftir að hafa horft á hluta síðasta borgarstjórnarfundar og dagskrá Alþingis í gær.
„Pirraðastur er jafnan þingforsetinn Steingrímur J. Sigfússon. Hann á bágt með að sýna yfirvegun og vera til fyrirmyndar. En það eru fleiri sem eiga bágt með þetta,“ segir Sigurjón í pistli á Miðjunni og nefnir til dæmis tvo borgarfulltrúa meirihlutans, Dóru Björt Guðjónsdóttur og Líf Magneudóttur.
„Ég sat eitt sinn með vel þekktum stjórnmálamanni. Við vorum einmitt að ræða framgöngu stjórnmálamanna. Sá reyndi, sagði að þau sem eru í meirihluta, fara með völdin, eigi umfram allt að sýna stillingu. Gæta þess að störfin gangi sem best. Ekki efna til ófriðar,“ segir Sigurjón og nefnir að í tilviki Dóru Bjartar og Lífar sé eitt að vera annarrar skoðunar en annað að orða hugsanir sínar með látum.
„Talandi um læti. Steingrímur J. Sigfússon fellur aftur og aftur í sama farið. Að ætla að stjórna þingfundum með látum. Og það miklum. Forseti Alþingis þarf að vera hafinn yfir þras og þrætur. Hann fær ekki virðingu með því að vera manna æstastur,“ segir Sigurjón og bætir við að Steingrímur virðist eiga bágt með að umbera Pírata. Það sé hans vandamál, en ekki Pírata.