Sigurgeir segir illa farið með Bjarna Ben: Segir að tilgangurinn sé aðeins einn

„Mér blöskrar hvernig hamast er á Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, vegna sölunnar á hlut í Íslandsbanka á dögunum,“ segir Sigurgeir Þorgeirsson eftirlaunaþegi í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar kemur hann Bjarna Benediktssyni til varnar vegna Íslandsbankamálsins svokallaða og telur að lætin í kringum málið séu til komin vegna yfirvofandi sveitastjórnarkosninga.

„Auðvitað er söngurinn um að Bjarni hafi selt pabba sínum banka út í hött. Til þess var Bankasýslan stofnuð á sínum tíma, að ráðherrar væru ekki með puttana í framkvæmd á bankasölu eða vali á kaupendum, enda er það margupplýst af öllum hlutaðeigandi aðilum að Bjarni Benediktsson hafði ekkert með það að gera hverjir keyptu hlut í bankanum. Benedikt faðir hans er vel þekktur og virtur fjárfestir, sem ekkert er athugavert við að hafi verið meðal rúmlega 200 kaupenda á hlutum í bankanum,“ segir Sigurgeir í grein sinni.

Hann bendir á að kerfið í kringum söluna sé einmitt til þess fallið að ættar- eða vinatengsl einstakra manna við viðkomandi ráðaherra geti hvorki auðveldað né torveldað þeim að taka þátt í útboði eins og því fram fór.

„Þingmennirnir sem hæst láta í umræðu um málið vita þetta allt. Þeir þekkja lögin um Bankasýsluna og tilganginn með henni, og þeir fengu ítarlega kynningu á fyrirkomulagi sölunnar áður en hún fór fram án þess að gera nokkrar athugasemdir. Þetta liggur allt fyrir. Tilgangur þessara aðila með hamaganginum er fyrst og fremst sá að níða Sjálfstæðisflokkinn í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna og halda umræðunni sem mest frá þeim málefnum sem meirihlutaflokkarnir eiga erfiðast með,“ segir Sigurgeir og nefnir nokkur atriði máli sínu til stuðnings.

Hann nefnir til dæmis lóðaskort vegna þéttingarstefnu borgaryfirvalda, umferðarmál, strætisvagnasamgöngur, lélegan snjómokstur, þrif á götum, skattheimtu í hæstu hæðum og leikskólamál.

„Fleira mætti telja en læt staðar numið. Ég geri mér grein fyrir því að ekki verða allir sammála þessari greiningu, en hvet fólk í Reykjavík til að hugsa um þessi mál og önnur þau málefni sem heyra undir borgarstjórn þegar gengið verður til kosninga á laugardaginn, en láta ekki ómálefnalegar dylgjur um óskyld mál villa sér sýn.“