Sigurgeir harðorður: „Þetta fólk er ekki komið hingað til að vera í sóttkví“

„Það segir sig sjálft að þetta fólk er ekki komið hingað til að vera í sóttkví,“ sagði Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, í fréttum RÚV í gærkvöldi.

Frétt í gær þess efnis að tveir erlendir ferðamenn hefðu verið stöðvaðir af lögreglu vakti talsverða athygli. Ferðamennirnir komu hingað til lands fyrir skemmstu en áttu bókað flug heim daginn eftir að niðurstaða seinni skimunar átti á liggja fyrir. Í millitíðinni hugðust þeir vera í sóttkví í sumarbústað.

Það er skemmst frá því að segja að mennirnir virtu ekki reglur um sóttkví og skelltu sér meðal annars á skíði. Voru þeir sektaðir um 200 þúsund krónur hvor.

Sigurgeir sagði í fréttum RÚV í gærkvöldi að hann væri þeirrar skoðunar að réttast væri að herða reglur um stutta dvöl ferðamanna hér á landi. Hann segir að lögreglan á landamærunum fylgist með þeim sem hyggjast dvelja hér á landi í skamman tíma og dæmi séu um að lögregla hafi verið send á dvalarstað umræddra einstaklinga til að tryggja að farið sé eftir reglum.

Sigurgeir segir að núna sé lögreglan á landamærunum að hvetja til þess að reglum verði breytt þannig að fólki verði ekið beint í sóttvarnarhús þar sem það er undir eftirliti.

„Við Þórólfur höfum rætt saman undanfarna daga og hann er sammála okkur um þetta, og að það verði þá jafnvel opnað sóttvarnahús nálægt flugvellinum,“ sagði Sigurgeir.

Eins og greint var frá í morgun mun Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynna minnisblað á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Þar er meðal annars lagt til að fólk frá ákveðnum áhættusvæðum verði skyldað til að fara í farsóttahús eftir komuna til landsins.