Sigurður vill réttlæti og vitnar í Davíð: „Svona gera menn ekki“

Sigurður Jónsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Garði, vísar í Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag,

„Sterkir leiðtogar taka af skarið og leiðrétta hlutina til að koma í veg fyrir að almenningur sé beittur órétti. Þau urðu fræg orðin sem Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra og formaður, sagði á sínum tíma úr stól Alþingis. Hann sagði: „Svona gera menn ekki.“

Sigurður rifjar upp að tilefnið á þeim tíma hafi verið að fjármálaráðuneytið hafi ákveðið að skattleggja ætti blaðburðarbörn. Davíð sagði að þessar litlu upphæðir skiptu blaðburðarbörnin miklu en ríkissjóð litlu.

Sigurður rifjar þetta upp þar sem honum þykir þetta svipa til framkomu núverandi stjórnvalda í garð lægst launuðu ellilífeyrisþeganna.

„Það er með ólíkindum að frítekjumark tekna úr lífeyrissjóði sé einungis 25 þúsund krónur á mánuði og að sú upphæð hafi ekkert breyst síðustu fimm ár. Eftir að 25 þúsund krónum er náð í greiðslum úr lífeyrissjóði byrja greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins að skerðast. Umrædd upphæð, 25 þúsund krónur á mánuði, hefur staðið óbreytt árum saman. Hún er ekki hækkuð í samræmi við hækkun vísitölu.“

Í grein sinni bendir Sigurður á að ef upphæðin væri hækkuð í samræmi við launaþróun síðustu fimm ára væri hún 34 þúsund krónur á mánuði.

„Fyrir þá sem eru á lægstu kjörunum skipta þessir fáu þúsundkallar máli. Það skiptir eldri borgarana mun meira máli að fá aðeins fleiri seðla í veskið en ríkissjóð að þurfa að greiða. Þetta er spurning um að sýna ellilífeyrisþegum smá virðingu og að réttlætis sé gætt. Það er ótrúlegt að enginn af núverandi forystumönnum skuli hafa risið upp og sagt: „Svona gera menn ekki.“

Sigurður segir að stundum geri stjórnvöld mistök en í þessu tilfelli sé ekki um nein mistök að ræða.

„Margoft hefur verið bent á hversu mikið óréttlæti hér er á ferðinni. Það á ekki að refsa þeim sem hafa safnað sér örfáum krónum í lífeyrissjóð. Það leysir ekki fjárhagsvanda þessa fólks þótt frítekjumörk atvinnutekna séu hækkuð í 200 þúsund krónur á mánuði.“

Sigurður bendir á að landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafi samþykkt á síðasta fundi sínum að frítekjumark lífeyrissjóðstekna hækkaði strax í 50 þúsund krónur á mánuði. Einnig að skerðingarhlutfall yrði lækkað. Samtök eldri sjálfstæðismanna hafi einnig ályktað á svipuðum nótum.

„Eðlilegt er að almenna frítekjumarkið verði hækkað í a.m.k. 100 þúsund krónur á mánuði. Því miður hefur forysta flokksins ekki hlustað á sína eigin grasrót. Það þarf því enginn að vera hissa á að flokkurinn tapi fylgi margra eldri borgara. Sú þróun mun halda áfram ef forysta Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að hlusta ekki. Er ekki kominn tími á að segja: „Svona gera menn ekki.““