Sigurður Þórðarson líklega boðaður aftur á fund þingnefndar um Lindarhvol

Miklar umræður urðu um greinargerð Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda, um starfsemi Lindarhvols á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í vikunni.

Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í fyrradag til að ræða skýrslu Skúla Eggerts Þórðarsonar, þáverandi ríkisendurskoðanda, um starfsemi Lindarhvols ehf., en hún hefur legið óafgreidd hjá nefndinni í þrjú ár.

Hringbraut hefur heimildir fyrir því að það hafi komið nefndarmönnum á óvart að þrátt fyrir að fundarefnið væri skýrsla Skúla Eggerts fjallaði Guðmundur Björgvin nokkuð um greinargerð Sigurðar Þórðarsonar, aðallega til að árétta andstöðu sína við birtingu hennar. Var greinargerðin þó ekki til umfjöllunar samkvæmt dagskrá fundarins.

Lagði hann sem fyrr mikla áherslu á að greinargerðin mætti aldrei líta dagsins ljós þar sem hún væri vinnuskjal Ríkisendurskoðunar. Þarna virðist ríkisendurskoðandi, sem er stjórnmálafræðingur að mennt, vera að lýsa eindreginni skoðun sinni á lögfræðilegu álitaefni. Túlkun hans gengur þvert gegn skýrri niðurstöðu Skúla Magnússonar, umboðsmanns Alþingis, um að almennt sé heimilt að birta vinnuskjöl ríkisendurskoðanda. Ólíkt ríkisendurskoðanda er umboðsmaður Alþingis lögfræðingur.

Sem fyrr segir kom það nefndarmönnum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á óvart hve mikinn áhuga ríkisendurskoðandi virtist hafa á að ræða um greinargerð Sigurðar. Fékk hann fjölda fyrirspurna frá þingmönnum og mun hafa ítrekað staðfest andstöðu sína við birtingu greinargerðarinnar. Umræður drógust svo á langinn að ekki tókst að ljúka fundinum í fyrradag.

Fundi var framhaldið kl. 16 í gær og gert var hlé á þingfundi vegna þess.

Guðmundur Björgvin Helgason (f.m.) vill ekki að greinargerð Sigurðar Þórðarsonar (t.v.) komi fyrir sjónir almennings. Skýrsla Skúla Eggerts Þórðarsonar (t.h.) stangast mjög á við niðurstöður Sigurðar.

Eftir að skýrsla Skúla Eggerts um Lindarhvol, þar sem ítrekað var vísað til greinargerðar Sigurðar og atriði í henni gagnrýnd og þeim mótmælt, var birt vorið 2020 var Sigurður boðaður á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þar sem hann gerði grein fyrir því að umfang og efnistök í greinargerð hans væru önnur en fram kæmu í skýrslu Skúla Eggerts, en nefndin hafði ekki fengið greinargerð hans til umfjöllunar. Niðurstaða fundarins var að Sigurður myndi gera grein fyrir athugasemdum sínum við skýrslu Skúla Eggerts.

Sigurður sendi 13 síðna samantekt sína, sem hann taldi mikilvægt að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefði til hliðsjónar við afgreiðslu skýrslu Skúla Eggerts, til forsætisnefndar Alþingis 17. febrúar 2021. Í framhaldinu var hann boðaður á fjarfund nefndarinnar 19. ágúst sama ár. Í upphafi fundar tilkynnti formaður nefndarinnar honum að skrifstofa Alþingis hefði ákveðið að fara skyldi með bréf hans frá 17. febrúar sem trúnaðarmál.

Í bréfi sem Sigurður sendi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 23. nóvember 2022 kemur fram að hann hafi á fundinum 19. ágúst 2021 bent á að fyrrnefnt bréf hans væri svar við skýrslu Skúla Eggerts sem væri opinbert gagn og því gæti ekki ríkt trúnaður um efni bréfsins. Óskaði hann eftir upplýsingum um það um hvaða atriði skyldi ríkja trúnaður en fékk engin svör.

Lögfræðingar sem Hringbraut hefur rætt við telja lagatúlkun skrifstofu Alþingis, um að trúnaður skuli ríkja um bréf Sigurðar með svörum við skýrslu sem Alþingi hefur birt, vera í besta falli einkennilega.

Hringbraut hefur heimildir fyrir því líklegt sé að Sigurður verði boðaður á lokaðan fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til að ræða skýrslu Skúla Eggerts. Sigurður hefur áður hafnað boði um að koma á fund nefndarinnar vegna þess að greinargerð hans, sem hann telur að eigi að vera opinbert gagn, fæst hvorki birt né rædd. Ekki gengur þó lengur að banna honum að ræða efnislega um bréf sitt frá 17. febrúar 2021 þar sem það hefur þegar birst í fjölmiðlum, meðal annars í Fréttablaðinu. Það er því óumdeilanlega orðið opinbert hvað sem líður lagatúlkun skrifstofu Alþingis. Bréfið má lesa hér. Einnig má lesa bréf Sigurðar til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar frá 24. nóvember 2022 hér.